Menningarmálanefnd auglýsir eftir aðilum sem óska eftir fjárframlögum frá nefndinni vegna listviðburða og menningarmála árið 2012.
Hér undir falla fjárframlög til margvíslegrar menningarstarfsemi í bænum.
Rétt til að sækja um framlög til nefndarinnar hafa listamenn, samtök listamanna og félagasamtök, sem vinna að listum og menningarmálum í Mosfellsbæ.
Fjárframlög til lista og menningarmála eru af tvennum toga:
- Verkefnastyrkir til einstakra verkefna
- Starfstyrkir til félagasamtaka á sviði lista og menningarmála í Mosfellsbæ
Nauðsynlegt er að umsækjendur tilgreini nákvæmlega til hvaða verka ætlað er að verja framlögunum.
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 1. mars 2012.
Nefndin áskilur sér rétt til að hafna umsókn umsækjanda að hluta eða alfarið.
Niðurstöður menningarmálanefndar Mosfellsbæjar munu liggja fyrir eigi síðar en 30. mars 2012 og eru háðar samþykki bæjarstjórnar.
Tengt efni
Frumkvöðlar óskast!
Lumar þú á frumlegri hugmynd sem gæti gert gott samfélag enn betra?
Styrkir veittir til efnilegra ungmenna 2024
Á dögunum veitti íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar styrki til ungra og efnilegra ungmenna á fundi sem haldinn var í Listasal Mosfellsbæjar.
Umsóknir óskast í Klörusjóð fyrir árið 2024
Nýsköpunar- og þróunarsjóður skóla- og frístundastarfs í Mosfellsbæ.