Dagana 16. – 22. september fer fram Evrópsk samgönguvika í Mosfellsbæ.
Mosfellsbær mun að venju taka virkan þátt í samgönguvikunni og meðal viðuburða í Mosfellsbæ má nefna hjólaferð að Hafravatni á Degi íslenskrar náttúru, hjólaþrautabraut fyrir ungmenni á miðbæjartorginu þar sem Dr. Bæk mun einnig aðstoða við hjólastillingar og viðhald á hjólum bæjarbúa, heimsókn BMX landsliðsins og hjólaráðstefnan Hjólum til framtíðar.