Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Dag­ana 16. – 22. sept­em­ber mun Mos­fells­bær taka þátt í Evr­ópsku Sam­göngu­vik­unni, Europe­an Mobility Week, en yf­ir­skrift­in í ár er á réttri leið.

Til­gang­ur sam­göngu­vik­unn­ar er að vekja at­hygli á vist­væn­um sam­göng­um og hvetja al­menn­ing til að nýta sér al­menn­ings­sam­göng­ur,  hjól­reið­ar og aðra vist­væna far­ar­kosti.

Mos­fells­bær hef­ur ver­ið virk­ur þátt­tak­andi í sam­göngu­vik­unni und­an­farin ár og í ár verð­ur boð­ið uppá ýmsa við­burði tengda vist­væn­um sam­göng­um bæði í Mos­fells­bæ og ann­ars stað­ar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Með­al þess sem verð­ur í boði er hjóla­æv­in­týri í tengsl­um við Dag ís­lenskr­ar nátt­úru sunnu­dag­inn 16. sept­em­ber, prent­un nýs hjóla- og göngu­leiða­korts fyr­ir Mos­fells­bæ sem dreift verð­ur á helstu staði í bæn­um, hjóla­þraut­ir á mið­bæj­ar­torgi, mál­þing um vist­væn­ar sam­göng­ur Hjól­um til fram­tíð­ar, sem hald­ið verð­ur í Iðnó föstu­dag­inn 21. sept­em­ber og við­burði tengda átak­inu Hjólað í skól­ann og Bíl­lausa deg­in­um.

Mos­fell­ing­ar eru hvatt­ir til að taka þátt í þessu ár­lega átaki, draga fram hjól­ið og njóta góðr­ar úti­veru og heilsu­sam­legr­ar hreyf­ing­ar.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00