Hætt verður við fyrirhugað tilraunaverkefni um skólaakstur milli Mosfellsbæjar og Borgarholtsskóla gegn gjaldi á haustönn.
Í bréfi til nemenda kom fram að nauðsynlegur lágmarksfjöldi þeirra sem myndu greiða fyrir þjónustuna væri 20. Þeim fjölda yrði að ná fyrir 1. september. Ekki hefur náðst upp í lágmarksfjölda og því verður ekki af verkefninu nú á haustönn. Nemendum er bent á leiðarkerfi Strætó.
Nánari upplýsingar veitir þjónustuver Mosfellsbæjar í s. 525-6700.
Tengt efni
Næturstrætó hefur aftur akstur til Mosfellsbæjar
Helgina 25. – 27. ágúst 2023 mun næturstrætó hefja akstur til Mosfellsbæjar á leið 106.
Rafskútur Hopp komnar í Mosfellsbæ
Mosfellsbær og Hopp hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um rekstur á stöðvalausri deilileigu fyrir rafskútur í Mosfellsbæ.
Tilkynning vegna hjáleiðar Strætó á sumardaginn fyrsta
Á sumardaginn fyrsta, 20. apríl fer skrúðganga frá Þverholti um Skeiðholt og Skólabraut.