Efnt verður til hjólabretta- og BMX hátíðar á miðbæjartorgi Mosfellsbæjar í dag, 21. september kl. 16-18.
Sett verður upp bretta- og hjólaþrautabraut á miðbæjartorginu og BMX landsliðið mætir og sýnir listir sínar og spjallar við gesti.
Allir krakkar boðnir sérstaklega velkomnir.