Mánudaginn 18. september verður haldin BMX-hátíð á Miðbæjartorginu kl. 17-19.
BMX-landsliðið mun mæta á svæðið og sýna listir sínar á nýju pumptrack brautinni.
Auk þess mun Dr. Bæk mæta á svæðið og aðstoðar við reiðhjólastillingar á gírum og bremsum, smyr keðjur og pumpar í dekk, ásamt því að aðstoða við minniháttar lagfæringar. Hjóleigendur eru hvattir til að koma við og fá fría ástandsskoðun.
Tengt efni
Vaskir hjólagarpar tóku þátt í BMX hátíð
Hráslagalegt veður stöðvaði ekki vaska hjólagarpa í gær þegar BMX-BRÓS stóðu fyrir BMX-hátíð á Miðbæjartorgi í tengslum við Samgönguviku.
Samgönguvika 16. - 22. september 2023
Við í Mosfellsbæ erum virkir þátttakendur í Samgönguviku og eftirfarandi verður í boði í Mosfellsbæ í vikunni.
Bíllausi dagurinn 22. september 2022
Í dag er bíllausi dagurinn en á þeim degi eru íbúar hvattir til að skilja bílinn eftir heima og nýta sér frekar vistvæna samgöngumáta sé þess kostur.