Mánudagurinn 22. september er Bíllausi dagurinn í Mosfellsbæ.
Að því tilefni ætlar Mosfellsbær að gefa gestum og gangandi á Bókasafni Mosfellsbæjar ókeypis strætómiða í dag, föstudag, á meðan birgðir endast. Með því vilja bæjaryfirvöld hvetja almenning til að skilja bílinn eftir heima og nýta sér almenningssamgöngur.
Bókasafn Mosfellsbæjar er opið frá klukkan 12 – 18 í dag.