Á vef Mosfellsbæjar eru nú aðgengilegar fjárhagsupplýsingar um rekstur sveitarfélagsins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins. Bæjarráð samþykkti í janúar á þessu ári að birta reglulega annars vegar rekstrarreikning og hins vegar rekstraryfirlit, sundurliðað eftir málaflokkum. Þessar upplýsingar verða framvegis birtar á þriggja mánaða fresti. Markmiðið er að bæta enn frekar úr upplýsingagjöf og gera bæjarbúum kleift að fylgjast nánar með rekstri bæjarins.