Yfir sumartímann kallar garðurinn, pallurinn og lóðin á ýmsar framkvæmdir og viðhald. Áður en farið er í framkvæmdir er mikilvægt að athuga hvort framkvæmdirnar séu háðar byggingarleyfi, samþykki sveitarfélagsins, aðkomu nágranna eða þarfnist frekara rýni skipulags.
Nýir skjólveggir og pallasmíði, gerð garðhýsa, bílastæða og sorpgeymslu eða frágangur við lóðarmörk eru dæmi um framkvæmdir sem gætu þurft samþykki byggingarfulltrúa og/eða nágranna.
Nánari upplýsingar:
Hægt er að senda tölvupóst á bygg@mos.is eða senda fyrirspurn til byggingar- eða skipulagsfulltrúa.
Tengt efni
Skipulagsþing - jákvæðar og uppbyggjandi umræður
Mosfellsbær hélt skipulagsþing síðastliðinn laugardag þar sem um 40 Mosfellingar fjölluðu um skipulagsmál í Mosfellsbæ í ljósi endurskoðunar aðalskipulags sem nú stendur yfir.