Fræðslunefnd fer með fræðslumál eftir því sem nánar er kveðið á um í samþykkt bæjarstjórnar um nefndina.
Nefndin fer með verkefni skólanefndar samkvæmt lögum um grunnskóla og verkefni leikskólanefndar samkvæmt lögum um leikskóla og hefur umsjón með dagvistunarúrræðum fyrir börn í Mosfellsbæ. Nefndin veitir leyfi til daggæslu barna í heimahúsum og hefur eftirlit með rekstri gæsluvalla fyrir börn. Nefndin fer ennfremur með málefni tónlistarskóla samkvæmt lögum um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla. Skólastjórar, fulltrúar starfsmanna og foreldrafulltrúar sitja fundi nefndarinnar þegar málefni sem þá varða eru til umfjöllunar í nefndinni.
Fundir eru að jafnaði haldnir annan hvern miðvikudag kl. 16:30.