Mál númer 201205141
- 21. nóvember 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #594
Farið yfir fjárhagsáætlun ársins 2013.
Fyrir liggur fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2013 til 2016 hvað varðar þróunar- og ferðamálanefnd.$line$$line$Fjárhagsáætlunin lögð fram.$line$$line$Afgreiðsla 27. fundar þróunar- og ferðamálanefndar lögð fram á 594. fundi bæjarstjórnar.
- 21. nóvember 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #594
Drög að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2013-2016 lögð fram til kynningar.
Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2013-2016 hvað varðar málaflokkinn Almenningsgarðar og útivist/Umhverfismál.$line$$line$Fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 fyrir málaflokk 11 lögð fram til kynningar.$line$$line$Fulltrúar M- og S-lista lögðu fram tvær tillögur og voru þær felldar með fjórum atkvæðum gegn einu.$line$$line$Fulltrúar M- og S-lista bóka eftirfarandi tillögur:$line$Fulltrúar M- og S-lista vilja beina þeim tilmælum til bæjarráðs að fjárframlög til viðhalds útivistaraðstöðu og endurheimtar náttúrugæða á Varmársvæðinu verði aukin.$line$Fulltrúar M- og S-lista gera að tillögu sinni að Mosfellsbær falli frá fjárfrekum framkvæmdum við Tunguveg þar sem vegurinn mun rýra náttúrugæði sem eru mikilvæg fyrir sveitarfélagið í nútíð og framtíð.$line$$line$$line$Til máls tóku: JS, JJB, $line$$line$Íbúahreyfingin og Samfylkingin leggja til að tillögur M og S lista verði settar á dagskrá síðar á dagskrá þessa bæjarstjórnarfundar þ.e. undir umræðu um fjárhagsáætlun 2013.$line$Jón Jósef Bjarnason og Jónas Sigurðsson.$line$$line$Samþykkt með sjö atkvæðum.
- 21. nóvember 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #594
Framkvæmdastjóri umhverfissviðs gerir grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 fyrir málaflokkinn Skipulags- og byggingarmál.
Framkvæmdastjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 fyrir málaflokkinn Skipulags- og byggingarmál.$line$$line$Lagt fram til kynningar.$line$$line$Lagt fram á 594. fundi bæjarstjórnar.
- 21. nóvember 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #594
Fjárhagsáætlun menningarmála 2013 lögð fram.
Fjárhagsáætlun menningarmála 2013.$line$$line$Fjárhagsáætlun menningarmála 2013 lögð fram.$line$$line$Lagt framk á 594. fundi bæjarstjórnar.
- 21. nóvember 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #594
Fjárhagsáætlun 2013 lögð fram.
Fjárhagsáætlun 2013 til 2016.$line$$line$Fjárhagsáætlunin lögð fram.$line$$line$Lagt fram á 594. fundi bæjarstjórnar.
- 21. nóvember 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #594
Lögð fram fjárhagsáætlun fræðslusviðs fyrir árið 2013. Áætlunin tekin fyrir í þremur hlutum. Fyrst Listaskóli, Skólaskrifstofa og aðrir hlutar. Þá leikskólar Mosfellsbæjar og loks grunnskólar Mosfellsbæjar og deildir þeim tengdar.
Lögð fram fjárhagsáætlun fræðslusviðs fyrir árið 2013. Áætlunin tekin fyrir í þremur hlutum. Fyrst Listaskóli, Skólahljómsveit, Skólaskrifstofa og aðrir hlutar. Þá leikskólar Mosfellsbæjar og loks grunnskólar Mosfellsbæjar og deildir þeim tengdar.$line$$line$Fjárhagsáætlun 2013 fyrir deildir á fræðslusviði lögð fram.$line$$line$Lagt fram á 594. fundi bæjarstjórnar.
- 21. nóvember 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #594
Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2013 ásamt greinargerð framkvæmdastjóra sviðsins.$line$$line$Framkvæmdastjóri kynnti áætlun sviðsins. Áætlunin var lögð fram.$line$$line$$line$Til máls tóku: JS, HSv og BH.$line$$line$Lagt fram á 594. fundi bæjarstjórnar.
- 21. nóvember 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #594
Samkvæmt samþykkt 592. fundar bæjarstjórnar var samþykkt að vísa fjárhagsáætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn á reglulegum fundi þann þann 21. nóvember nk.$line$Sömu fylgigögn gilda og við framlagningu til fyrri umræðu og að auki þau fylgigögn sem hér fylgja.
Forseti gaf bæjarstjóra orðið og fór bæjarstjóri yfir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2013 til 2016.$line$$line$Helstu niðurstöðutölur í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 A og B hluta eru eftirfarandi:$line$$line$Tekjur: 6.732 m.kr. $line$Gjöld: 6.097 m.kr.$line$Fjármagnsgjöld: 601 m.kr$line$Rekstrarniðurstaða: 34 m.kr.$line$Eignir í árslok: 13.050 m.kr.$line$Eigið fé í árslok: 3.761 m.kr.$line$Fjárfestingar: 869 m.kr.$line$-------------------------------------------------------------$line$Útsvarsprósenta 2013.$line$$line$Útvarsprósenta fyrir árið 2013 verður 14,48% $line$-------------------------------------------------------------$line$Álagningarprósentur fasteignagjalda fyrir árið 2013 eru eftirfarandi:$line$$line$Fasteignagjöld íbúðarhúsnæðis (A - skattflokkur)$line$Fasteignaskattur A 0,265% af fasteignamati húss og lóðar$line$Vatnsgjald 0,100% af fasteignamati húss og lóðar$line$Fráveitugjald 0,140% af fasteignamati húss og lóðar$line$Lóðarleiga A 0,340% af fasteignamati lóðar$line$ $line$Fasteignagjöld stofnana skv. 3. gr. reglugerðar 1160/2005 (B - skattflokkur)$line$Fasteignaskattur B 1,320% af fasteignamati húss og lóðar$line$Vatnsgjald 0,100% af fasteignamati húss og lóðar$line$Fráveitugjald 0,140% af fasteignamati húss og lóðar$line$Lóðarleiga B 1,100% af fasteignamati lóðar$line$ $line$Fasteignagjöld annars húsnæðis (C - skattflokkur)$line$Fasteignaskattur C 1,650% af fasteignamati húss og lóðar$line$Vatnsgjald 0,100% af fasteignamati húss og lóðar$line$Fráveitugjald 0,140% af fasteignamati húss og lóðar$line$Lóðarleiga C 1,100% af fasteignamati lóðar$line$-------------------------------------------------------------$line$Gjalddagar fasteignagjalda eru níu, fimmtánda dag hvers mánaðar frá 15. janúar til og með 15. september.$line$Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Sé fjárhæð fasteignagjalda undir kr. 30.000 er gjalddagi þeirra 15. janúar $line$með eindaga 14. febrúar.$line$-------------------------------------------------------------$line$Eftirtaldar reglur taka breytingum og gilda frá 1.1.2013.$line$$line$Reglur um afslátt af fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega.$line$-------------------------------------------------------------$line$Eftirtaldar gjaldskrár liggja fyrir og taka breytingum þann 1.1.2013 og eru almennt að hækka um 5,4% milli ára.$line$$line$gjaldskrá, húsaleiga í þjónustuíbúðum fatlaðs fólks$line$gjaldskrá, í félagsstarfi aldraðra$line$gjaldskrá, húsnæðisfulltrúa Mosfellsbæjar$line$gjaldskrá, húsaleiga í íbúðum aldraðra$line$gjaldskrá, húsaleiga í félagslegum íbúðum$line$gjaldskrá, vegna heimsendingar fæðis$line$gjaldskrá, félagsleg heimaþjónusta í Mosfellsbæ$line$gjaldskrá, ferðaþjónusta fatlaðs fólks$line$gjaldskrá, ferðaþjónusta í félagsstarfi aldraðra$line$gjaldskrá, dagvist aldraðra$line$$line$samþykkt, um mötuneyti grunnskóla Mosfellsbæjar$line$gjaldskrá, gæsluvalla í Mosfellsbæ$line$gjaldskrá, vegna rekstrarstyrkja til einkarekinna leikskóla$line$gjaldskrá, leikskóla$line$gjaldskrá,þjónustusamnings vegna daggæslu barna í heimahúsi$line$gjaldskrá, skólahljómsveitar Mosfellsbæjar$line$gjaldskrá, Listaskóla Mosfellsbæjar - tónlistardeildar$line$gjaldskrá, fyrir mötuneyti grunnskóla Mosfellsbæjar$line$gjaldskrá, í frístundarseljum$line$$line$gjaldskrá, íþróttamiðstöðva og sundlauga$line$gjaldskrá, Bókasafns Mosfellsbæjar$line$$line$gjaldskrá, Vatnsveitu Mosfellsbæjar$line$gjaldskrá, skipulags- og byggingarmála í Mosfellsbæ$line$gjaldskrá, fyrir rotþróargjald í Mosfellsbæ$line$gjaldskrá, um hundahald í Mosfellsbæ$line$gjaldskrá, Hitaveitu Mosfellsbæjar$line$gjaldskrá, fyrir fráveitugjald í Mosfellsbæ$line$gjaldskrá, fyrir sorphirðu í Mosfellsbæ$line$-------------------------------------------------------------$line$ $line$Til máls tóku: HSv, BH, JS, JJB, HS, HP og KT.$line$$line$Tillaga S-lista Samfylkingar og M- lista Íbúahreyfingarinnar.$line$Gerum það að tillögu okkar að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar verði sú sama og fjárhæð atvinnuleysisbóta hverju sinni.$line$$line$Greinargerð með tillögunni.$line$Sambærileg tillaga var flutt við afgreiðslu fjárhagsáætlunar yfirstandandi árs en hlaut þá ekki brautargengi af hálfu meirihlutans.$line$Ef eitthvað er þá er enn brýnna nú að bæta kjör þeirra sem þurfa að leita fjárhagsaðstoðar sveitarfélagsins enda eru það þeir sem við allra lökustu kjörin búa í samfélagi okkar. Jafnframt er enn bent á erindi velferðarráðherra frá árinu 2011 þar sem hann beinir því til sveitarstjórna "að þær tryggi að einstaklingar hafi að lágmarki sambærilega fjárhæð og atvinnuleysisbætur til framfærslu á mánuði".$line$Jónas Sigurðsson.$line$Jón Jósef Bjarnason.$line$$line$Tillagan borin upp og felld með fimm atkvæðum gegn tveimur atkvæðum.$line$$line$Bókun D- og V-lista vegna tillögu S- og M-lista um fjárhagsaðstoð.$line$$line$Fjárhagsáætlun 2013 gerir ráð fyrir 5,4% hækkun fjárhagsaðstoðar í byrjun árs 2013. Upphæð fjárhagsaðstoðar í Mosfellsbæ er í samræmi við það sem gerist hjá mörgum öðrum sveitarfélögum. Réttur til fjárhagsaðstoðar er tímabundin neyðarráðstöfun, lög um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglur Mosfellsbæjar um fjárhagsaðstoð kveða á um að leitað skuli sem flestra leiða til að leysa vanda einstaklinga og fjölskylda þannig að þeir geti séð sjálfum sér og sínum farborða. Megin markmið er að einstaklingar og fjölskyldur verði fær um að stjórna málum sínum sjálfir en verði ekki háður aðstoðinni. Auk þessa er í farvatninu sérstök vinnumarkaðsúrræði þar sem gert er ráð fyrir að einstaklingar sem njóta fjárhagsaðstoðar fái aðstoð við atvinnuleit. $line$$line$$line$Tillaga S- lista Samfylkingar.$line$Geri það að tillögu minni að í fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 verði gert ráð fyrir a.m.k. 12 fundum á árinu hjá hverri nefnd.$line$Jafnframt því verði nefndunum gert að gera starfsáætlun fyrir árið þar sem fram komi tímasetning fastra funda nefndanna. Jafnframt því innihaldi áætlunin tímasetningu á umfjöllun nefndanna um verkefni þeirra skv. samþykktum um viðkomandi nefnd. Bæjarráði verði falið að standa fyrir endurskoðun á samþykktum nefndanna hvað þetta varðar og leggja fyrir bæjarstjórn.$line$Jónas Sigurðsson.$line$$line$Greinargerð með tillögunni.$line$Full ástæða er til að koma vinnu margra nefnda bæjarins í fastara form með áætlun fyrir árið um störf þeirra sem og að nefndirnar nái betur utan um þau verkefni sem þeim eru falin samkvæmt samþykktum fyrir nefndirnar. Jafnframt auðveldar slík áætlanagerð nefndarmönnum undirbúning þeirra undir fundina sem og að gögn sem þeir þurfa á að halda berist þeim með nægjanlegum fyrirvara. Ljóst er alltaf verður einnig um tilfallandi mál að ræða á fundum nefndanna sem kappkosta þarf að koma upplýsingum um til nefndarmanna með eins löngum fyrirvara og kostur er.$line$$line$Tillagan borin upp um a.m.k. 12 fundi á ári og felld með fimm atkvæðum gegn tveimur atkvæðum.$line$$line$Málsmeðferðartillaga kom fram um að bæjarstjórn leggi til við nefndir bæjarins að í upphafi árs verði gerð áætlun um fundartíma og niðurröðun fastra verkefna ársins.$line$$line$Tillagan borin upp og samþykkt með sjö atkvæðum.$line$$line$$line$Tillaga S-lista Samfylkingar.$line$Geri það að tillögu minni að frístundaávísanir barna og ungmenna verði hækkaðar í 25.000 kr.$line$Jónas Sigurðsson.$line$$line$Tillagan borin upp og felld með fimm atkvæðum gegn tveimur atkvæðum.$line$$line$Bókun D- og V-lista um tillögur S-lista um frístundaávísanir$line$Fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 gerir ráð fyrir 20% hækkun á upphæð frístundaávísunar. Það er von bæjarfulltrúa D- og V-lista að rekstrarumhverfi Mosfellsbæjar leyfi að þessi upphæð geti hækkað enn frekar á komandi árum.$line$$line$Bókun bæjarfulltrúa Íbúahreyfingarinnar.$line$Íbúahreyfingin hefur frá upphafi óskað eftir tölfræði um iðkendur vs. styrki til íþrótta- og tómstundafélaga þar sem dregnir eru fram aldurshópar. Þessar upplýsingar þurfa að liggja fyrir áður en fjárhagsáætlun er gerð en hafa ekki gert og gera ekki enn. Það er skoðun Íbúahreyfingarinnar að ekki sé hægt að áætla fjarmagn til þessara félaga án þessa að þessar upplýsingar liggi fyrir.$line$Jón Jósef Bjarnason.$line$$line$$line$Tillaga S- lista Samfylkingar.$line$Geri það að tillögu minni að reglur Mosfellsbæjar um sérstakar húsaleigubætur verði endurskoðaðar með tilliti til eftirfarandi:$line$Sé ekki fyrir hendi laust félagslegt leiguhúsnæði og fyrir liggur umsókn sem uppfyllir skilyrði í þeim efnum skal þá leitað eftir húsnæði á almennum markaði. Húnsæðið er síðan leigt viðkomandi umsækjanda sem greiðir leigu samkvæmt gjaldskrá húsaleigu í félagslegu leiguhúsnæði. Bæjarfélagið greiðir síðan mismuninn. Tillögunni verði vísað til bæjarráðs til undirbúnings að breytingu á áðurnefndum reglum og kostnaðargreiningu samfara þeim. Í framhaldinu gerir bæjarráð tillögu að viðauka um breytingu á fjárhagsáætluninni sem lögð verði fyrir bæjarstjórn.$line$Jónas Sigurðsson. $line$$line$Tillagan borin upp og felld með fimm atkvæðum gegn tveimur atkvæðum.$line$$line$Bókun D- og V-lista vegna tillögu S-lista um húsaleigubætur$line$Fyrir dyrum standa breytingar á fyrirkomulagi greiðslu húsaleigubóta og vaxtabóta. Samráðshópur á vegum velferðarráðherra hefur skilað tillögum sínum til hans hvernig taka megi húsnæðisbætur upp á leigumarkaði í tveimur áföngum, annars vegar 1. janúar 2013 og hins vegar 1. janúar 2014. Þar sem ekki liggur fyrir í hverju fyrrgreindar tillögur eru fólgnar og hvaða áhrif þær munu hafa á stöðu leigjenda er ekki tímabært að breyta núverandi fyrirkomulagi. Að öðru leyti vísast til þess að Mosfellsbær mun hér eftir sem hingað til sinna þeim fjölskyldum sem eru í brýnni þörf fyrir húsnæði með sérstækum úrræðum eins og sérstökum húsleigubótum, félagslegum íbúðum og leigu húsnæðis á frjálsum markaði.$line$$line$$line$Tillaga S-lista Samfylkingar.$line$Geri það að tillögu minni að fjárveitingar til stuðnings- og stoðþjónustu skólanna verði á sér bókhaldslyklum í reikningshaldi þeirra, sem óheimilt verði að ráðstafa til annarrar stafsemi.$line$Jónas Sigurðsson.$line$$line$Greinargerð með tillögunni:$line$Í "Reglugerð um nemendur með sérþarfir í grunnskóla" eru ákvæði sem ekki er hægt að túlka með með öðrum hætti en að gert sé ráð fyrir því fyrirkomulagi sem lagt er til í tillögu minni. $line$Eftirfarandi atriði úr reglugerðinni fjalla um fjárhagsáætlanir sveitarfélaga sem og um markmið reglugerðarinnar og rétt nemenda:$line$$line$Fjárhagsáætlanir sveitarfélaga;$line$Við gerð árlegrar fjárhagsáætlunar gerir sveitarstjórn ráð fyrir fjárveitingum til kennslu nemenda með sérþarfir í grunnskólum. Fjármagni sem ákveðið er með þessum hætti skal varið til kennslu í grunnskólum, kennslu í sérúrræðum innan grunnskóla og ráðgjafar við skóla. Þá skal gert ráð fyrir fjárveitingum til annarra starfa vegna stuðnings við nemendur með sérþarfir eftir nánari ákvörðun sveitarstjórnar, þ.m.t. til sjúkrakennslu.$line$$line$Markmið reglugerðar þessarar er að nemendur;$line$a.$line$ fái jöfn tækifæri á eigin forsendum til náms og virkrar þátttöku í grunnskólum án aðgreiningar þannig að komið sé til móts við náms-, líkams-, félags- og tilfinningalegar þarfir þeirra, $line$b.$line$ fái fjölbreytt nám við hæfi í hvetjandi námsumhverfi og í viðeigandi húsnæði sem tekur mið af þörfum þeirra og stöðu, $line$c.$line$ geti þroskað persónuleika sinn, hæfileika og sköpunargáfu, ásamt andlegri og líkamlegri getu og verið félagslega virkir þátttakendur í skólasamfélaginu þar sem byggt er á styrkleikum þeirra, $line$d.$line$hafi jöfn tækifæri í grunnskólum í samræmi við alþjóðlega samninga um réttindi barna og fatlaðra. $line$$line$Nemendur eiga rétt á: $line$a.$line$að komið sé til móts við náms- og félagslegar þarfir þeirra í skóla án aðgreiningar án tillits til líkamlegs eða andlegs atgervis, $line$b.$line$að sjónarmiðum þeirra sé gefinn gaumur miðað við aldur þeirra og þroska og þeim veitt aðstoð, þar sem tekið er tillit til sérþarfa þeirra og aldurs, $line$c.$line$að þeir geti nýtt sér viðeigandi samskiptamáta, s.s. táknmál, blindraletur og viðeigandi tækjabúnað, aðlöguð námsgögn, aðstöðu og kennslu til að stuðla að sem bestri menntun, sjálfsstyrkingu og félagsþroska.$line$$line$Tillagan borin upp og felld með fimm atkvæðum gegn tveimur atkvæðum.$line$$line$Bókun D- og V-lista vegna tillögu S-lista um bókhaldslykla.$line$Tillaga þessi var borin fram af fulltrúa S-lista við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlunar. Henni var vísað til umsagnar framkvæmdastjóra fræðslusviðs og fjármálastjóra til umsagnar. Umsögn barst bæjarráði í febrúar sl. þar sem ekki var mælt með þessar aðferðafræði, auk þess var málinu vísað til vinnuhóps um málefni barna með sérþarfir og sérfræðiþjónustu. Í meðförum hópsins var málið rætt og ekki talin ástæða til að taka undir sjónarmið tillöguhafa. Að öðru leyti vísast til greinargerðar framkvæmdastjóra fræðslusvið vegna málsins dags. 20.11.2012.$line$$line$$line$Tillaga S- lista Samfylkingar.$line$Geri það að tillögu minni að bæjarráði verði falið að standa fyrir endurskoðun á rekstri og framkvæmdum sveitarfélagsins með tilliti til áhersla á einstaka liði og málefnaflokka í rekstri og þjónustu bæjarins og þá einkum með það í huga að efla fjárveitingar til skólastofnana. Þessu verkefni verði lokið vorið 2013 og leggi bæjarráð þá fyrir bæjarstjórn tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2013.$line$Jónas Sigurðsson.$line$$line$Greinargerð með tillögunni.$line$Á undanförnum árum hefur niðurskurður eða hagræðing í rekstri, hvað svo sem á að kalla það, einkum bitnað á rekstri skólastofnana bæjarins enda eru fræðslumál stærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins. Fram hafa komið viðvaranir um að of langt hafi verið gengið í þessum efnum og verði ekki um stefnubreytingu að ræða komi það til með að hafa alvarleg áhrif á þjónustu grunnskólanna, sérfræðiþjónustuna o.fl. Þessar viðvaranir má m.a. lesa út úr skýrslu vinnuhóps um Sérfræðiþjónustu og þjónustu við börn með sérþarfir í leik- og grunnskólum, ályktun bekkjafulltrúa Varmárskóla, viðhorf formanns foreldrafélags Varmárskóla o.fl. Einnig er ljóst að álag hefur verið mikið á starfsfólk skólastofnana og stoðþjónustunnar sem hafa unnið frábært starf við erfiðar aðstæður. Því er hér lagt til að bæjaryfirvöld endurmeti forgangsröðun sína í rekstri bæjarins undir verkstjórn bæjarráðs.$line$$line$Tillagan borin upp og felld með fimm atkvæðum gegn tveimur atkvæðum.$line$$line$Bókun D- og V-lista vegna tillögu S-lista um endurskoðun á rekstri$line$ Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 hefur verið lögð mikil vinna nú sem endranær af fjölmörgum starfsmönnum bæjarins og hér um að ræða vandaða áætlun. Andi sveitarstjórnarlaga um fjárhag sveitarfélaga og áætlanagerð er ekki á þann veg að skera eigi fjárhagsáætlun sveitarfélaga upp á miðju rekstrarári með breytingar í huga. Bæjarfulltrúar D- og V- lista leggja til við bæjarfulltrúa S-lista að ef framboðinu finnst að rangar áherslur séu í rekstri sveitarfélagsins að fulltrúar þess komi með mótaðar tillögur um hvar beri að minnka útgjöld og hvar bæta eigi í í upphafi næsta árs svo hægt sé að fara yfir það við vinnu við fjárhagsáætlunargerðina en ekki koma með óljósar hugmyndir tveimur dögum fyrir afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar.$line$$line$$line$Bæjarfulltrúar M- og S lista flytja aftur tvær tillögur sem fram komu frá fulltrúum þessara flokka í umhverfisnefnd og vísað var fyrr á þessum fundi til umræðu undir þessum dagskrárlið sem hér er til umæðu.$line$ $line$Fulltrúar M- og S-lista vilja beina þeim tilmælum til bæjarráðs að fjárframlög til viðhalds útivistaraðstöðu og endurheimtar náttúrugæða á Varmársvæðinu verði aukin.$line$$line$Tillagan borin upp og felld með fimm atkvæðum gegn tveimur atkvæðum.$line$$line$Hafsteinn Pálsson vildi gera grein fyrir mótatkvæði sínu og telur að eins og tillagan er orðuð muni hún ávallt orka tvímælis.$line$$line$Fulltrúar M- og S-lista gera að tillögu sinni að Mosfellsbær falli frá fjárfrekum framkvæmdum við Tunguveg þar sem vegurinn mun rýra náttúrugæði sem eru mikilvæg fyrir sveitarfélagið í nútíð og framtíð.$line$$line$Tillagan borin upp og felld með fimm atkvæðum gegn tveimur atkvæðum.$line$$line$$line$Bókun bæjarfulltrúa Íbúahreyfingarinnar.$line$Laun er stór hluti útgjalda Mosfellsbæjar, Íbúahreyfingin óskaði eftir einföldum upplýsingum um þróun launa æðstu embættismanna Mosfellsbæjar s.l. vor en hefur ekki fengið. Íbúahreyfingin kærði málið til Innanríkisráðuneytis. $line$Íbúahreyfingin lítur þetta mjög alvarlegum augum, enda er með þessu komið í veg fyrir að bæjarfulltrúinn geti sinnt starfi sínu fyrir íbúa sveitarfélagsins.$line$Jón Jósef Bjarnason.$line$$line$Bókun bæjarfulltrúa D- og V lista.$line$Bæjarfulltrúi M-lista getur að sjálfsögðu fengið allar þær upplýsingar sem hann óskar eftir eins og lög og reglur gera ráð fyrir. Þær upplýsingar sem hér er vísað til hafði hann ekki þolimæði til að bíða eftir þrátt fyrir að hann hefði upplýsingar um að verið væri að taka þær saman af stjórnsýslu bæjarins. Því ákvað hann að setja málið í þann farveg að kæra málið til innanríkisráðuneytisins sem vísaði kærunni til kærunefndar upplýsingamála. Bæjarfulltrúinn fékk síðan upplýsingar á grundvelli úrskurðar nefndarinnar.$line$$line$Tillaga bæjarfulltrúa Íbúahreyfingarinnar.$line$Íbúahreyfingin leggur til að bæjarráð geri úttekt á aksturskostnaði sveitarfélagsins og myndi heildstæða stefnu um þennan kostnaðarlið og leiðrétti laun þar sem við á .$line$$line$Komið hefur í ljós að laun séu falin í akstursstyrkjum og bílahlunnindum. Íbúahreyfingin rekur stefnu gagnsæis en laun falin í akstursstyrkjum eru ógagnsæ. Ef Mosfellsbær vill greiða hærri laun en kjarasamningar kveða á um, ber að gera það með gagnsæjum hætti.$line$Laun opinberra starfsmanna eru opinberar upplýsingar og eiga að vera gagnsæ. $line$Jón Jósef Bjarnason.$line$$line$Tillagan borin upp og felld með fimm atkvæðum gegn tveimur atkvæðum.$line$$line$Bókun bæjarfulltrúa D- og V lista.$line$Líkt og fram kemur í fjárhagsáætlun liggur ljóst fyrir hver aksturskostnaður er því er ekki um neinar faldar greiðslur að ræða líkt og Íbúahreyfingin heldur fram.$line$$line$$line$Upp er borið til samþykktar í einu lagi ofangreint, það er:$line$fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2013 til 2016,$line$Útsvarsprósenta fyrir árið 2013,$line$Álagningarprósentur fasteignagjalda fyrir árið 2013,$line$Reglur um afslátt af fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega og$line$ofangreindar gjaldskrár á vegnum Mosfellsbæjar.$line$$line$Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2013 til 2016 ásamt ákvörðun um útsvarsprósentu, álagningarprósentur fasteignagjalda, reglna og gjaldskráa borin upp til atkvæða og samþykkt með fimm atkvæðum.$line$ $line$Bókun S-lista Samfylkingar vegna fjárhagsáætlunar 2013.$line$Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2013 ásamt þriggja ára áætlun lýsir sýn meirihluta sjálfstæðismanna og VG á áherslur í rekstri og framkvæmdum sveitarfélagsins. Einkenni áætlunarinnar er skortur á vilja til að takast á við þann vanda sem blasir við skólastofnunum bæjarins, vilja til að bæta hag þeirra sem verst standa fjárhagslega sem og að stuðla að því að þáttaka barna og ungmenna í frístundastarfi sé ekki háð efnahag heimilanna. Jafnframt staðfestir áætlunin stefnuleysi meirihlutans í uppbyggingu á aðstöðu fyrir skólastofnanir bæjarins, aðstöðu til íþróttastarfs og framkvæmdir í umhverfismálum. Áfram skal haldið með skyndi ákvarðanir hvað slíkar framvæmdir áhrærir í stað markvissrar stefnumörkunar til lengri tíma.$line$Jónas Sigurðsson.$line$$line$Bókun D-lista og V-lista vegna afgreiðslu á tillögum S-lista.$line$Tillögur S-lista eru allar góðrar gjalda verðar og í fullkomnum heimi yrðu þær flestar sjálfsagt samþykktar samhljóða. Hinsvegar er raunveruleikinn sá að bæjarstjórn er að útdeila takmörkuðu fjármunum sem reynt er að útdeila á sem sanngjarnastan hátt þannig að það komi sem flestum til góða. Tillögur S-lista kosta verulega fjármuni og mun meiri en áætlaður rekstrarafgangur fjárhagsáætlunar gerir ráð fyrir. Ljóst er því að skera þyrfti verulega niður á öðrum stöðum til að fjármagna tilögur S-lista. Auk þess gera tillögurnar ráð fyrir að farið verði í einhverskonar "endurmat á forgangsröðun" eins og það er orðað til að auka við fjármagn til skólamála. Afleiðing slíks yrði niðurskurður í öðrum málaflokkum. S-listi leggur ekki fram neinar hugmundir um hvar skuli bera niður til að fjármagna þessar tillögur sínar. Sumar þessara tillagna eru gamlir kunningjar og hafa verið lagðar fram áður. Það verður að teljast ábyrgðarlaust að leggja fram tillögur (og sumar endurtekið) um verulega útgjaldaaukningu án þess að vera með lausnir um hvar skuli bera niður til að fjármagna þær. Þessar tillögur virðast vera settar fram til að slá ryki í augun á íbúum.$line$$line$$line$Bókun V- og D-lista með fjárhagsáætlun 2013-16.$line$Fjárhagsstaða Mosfellsbæjar er traust og reksturinn ábyrgur. Hófleg íbúafjölgun hefur verið undanfarin ár og er Mosfellsbær eitt fárra sveitarfélaga þar sem fólkfjölgun á sér stað um þessar mundir og sýnir það styrk og vinsældir sveitarfélagsins. Megináherslur í fjárhagsáætlun 2013 eru hér eftir sem hingað til að standa vörð um grunn- og velferðarþjónustu bæjarins$line$$line$Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 verður rúmlega 33 mkr. afgangur af rekstri Mosfellsbæjar eftir fjármagnsliði. Veltufé frá rekstri verður jákvætt um 697mkr. eða um 10,4% af heildartekjum. Gert er ráð fyrir að skuldir sem hlutfall af tekjum muni lækka. Þrátt fyrir afgang rekstri og lækkun skuldahlutfalls þarf við rekstur Mosfellsbæjar á næstu árum að haga rekstri Mosfellsbæjar áfram af ábyrgð og ráðdeild þar sem ljóst er að rekstrarumhverfi sveitarfélaga verður áfram áskorun. Áfram verður haldið að byggja upp sveitarfélagið. Á árinu 2013 er gert ráð fyrir að fjórar stórar byggingarframkvæmdir verði í gangi, bygging hjúkrunarheimilis sem gert er ráð fyrir að tekin verði í notkun á árinu, ný og endurbætt aðstaða fyrir félags- og þjónustumiðstöð eldra fólks, bygging framhaldskóla í samvinnu við ríkisvaldið og svo bygging á nýjum íþróttasal við Varmá sem hýsa mun aðstöðu fyrir fimleika og bardagaíþróttir. Óhætt er að fullyrða að það eru fá sveitarfélög sem standa í viðlíka framkvæmdum um þessar mundir. Aðstaða fyrir framhaldskólanema, eldra fólk og bætt aðstaða til íþróttaiðkunar mun nýtast flestum íbúum í Mosfellsbæ á einn eða annan hátt.
- 15. nóvember 2012
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar #137
Drög að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2013-2016 lögð fram til kynningar.
Drög að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2013-2016.
Framkvæmdastjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 fyrir málaflokkinn Almenningsgarðar og útivist/Umhverfismál.
Til máls tóku: BBj, ÖJ, AMEE, KDH, SHP, SiG, JBH, TGGFjárhagsáætlun fyrir árið 2013 fyrir málaflokk 11 lögð fram til kynningar.
Fulltrúar M- og S-lista lögðu fram tvær tillögur og voru þær felldar með fjórum atkvæðum gegn einu.Fulltrúar M- og S-lista bóka eftirfarandi tillögur:
Fulltrúar M- og S-lista vilja beina þeim tilmælum til bæjarráðs að fjárframlög til viðhalds útivistaraðstöðu og endurheimtar náttúrugæða á Varmársvæðinu verði aukin.
Fulltrúar M- og S-lista gera að tillögu sinni að Mosfellsbær falli frá fjárfrekum framkvæmdum við Tunguveg þar sem vegurinn mun rýra náttúrugæði sem eru mikilvæg fyrir sveitarfélagið í nútíð og framtíð. - 15. nóvember 2012
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar #164
Fjárhagsáætlun 2013 lögð fram.
Fjárhagsáætlun 2013 lögð fram.
- 14. nóvember 2012
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar #170
Fjárhagsáætlun menningarmála 2013 lögð fram.
Fjárhagsáætlun menningarmála 2013 lögð fram.
Til máls tóku: HÖZS,BBr,ÞGk,SÞo,LSG,BÞÞ.
- 14. nóvember 2012
Þróunar- og ferðamálanefnd #27
Farið yfir fjárhagsáætlun ársins 2013.
Farið yfir fjárhagsáætlun ársins 2013.
Til máls tóku. RBG HH BJó
Áætlunin lögð fram.
- 13. nóvember 2012
Fræðslunefnd Mosfellsbæjar #273
Lögð fram fjárhagsáætlun fræðslusviðs fyrir árið 2013. Áætlunin tekin fyrir í þremur hlutum. Fyrst Listaskóli, Skólaskrifstofa og aðrir hlutar. Þá leikskólar Mosfellsbæjar og loks grunnskólar Mosfellsbæjar og deildir þeim tengdar.
Lögð fram fjárhagsáætlun fræðslusviðs fyrir árið 2013. Áætlunin tekin fyrir í þremur hlutum. Fyrst Listaskóli, Skólahljómsveit, Skólaskrifstofa og aðrir hlutar. Þá leikskólar Mosfellsbæjar og loks grunnskólar Mosfellsbæjar og deildir þeim tengdar.
Til máls tóku: EMa,BB,HP,ESÓ,SÞo,ASG,LSGr,GÞE,ÞRÓ,ÞSt,ÞH,GV,SvD,SF,AG,DÞE,MSI,GMS,BÞÞ.
Fjárhagsáætlun 2013 fyrir deildir á fræðslusviði lögð fram.
- 13. nóvember 2012
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #331
Framkvæmdastjóri umhverfissviðs gerir grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 fyrir málaflokkinn Skipulags- og byggingarmál.
Framkvæmdastjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 fyrir málaflokkinn Skipulags- og byggingarmál.
Til máls tóku: EP, BH, ÓG, ÞJS, HB, JE, JBH .Lagt fram til kynningar.
- 13. nóvember 2012
Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar #198
Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2013 kynnt ásamt greinargerð framkvæmdastjóra sviðsins.
Til máls tóku: KGÞ, ÞIJ, HS, IBI, EBB og Kþ.
Framkvæmdastjóri kynnti áætlun sviðsins. Áætlunin var lögð fram.
- 7. nóvember 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #593
Drög að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árin 2013 til 2016. Drögin eru til umræðu og vísunar til fyrstu umræðu í bæjarstjórn þann 31. október nk.
Drög að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árin 2013 til 2016.$line$$line$Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa drögum að fjárhagsáætlun 2013 til 2016 til fyrri umræðu í bæjarstjórn á aukafundi þann 31. október nk.$line$$line$Afgreiðsla 1095. fundar bæjarráðs lögð fram á 593. fundi bæjarstjórnar.
- 31. október 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #592
Bæjarráð, 1095. fundur, vísar fjárhagsáætlun 2013 til 2016 til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Frekari fylgigögn s.s. greinagerðir með fjárhagsáætlun verða tengd á fundargátt um hádegisbil á mánudaginn kemur.
Fyrir fundinum lágu drög að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir 2013 til 2016 en drögin eru send til bæjarstjórnar frá bæjarráði sem fjallaði um drögin á 1095. fundi sínum þann 25. október sl.
Fundinn undir þessum dagskrárlið sátu einnig Unnur V. Ingólfsdóttir (UVI) framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs, Pétur J. Lockton (PJL) fjármálastjóri og Aldís Stefánsdóttir (ASt) forstöðumaður þjónustu- og upplýsingamála.Forseti gaf bæjarstjóra orðið og fór hann yfir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun bæjarsjóðs og stofnana hans fyrir árin 2012 til 2016 og gerði grein fyrir helstu atriðum eins og þau voru kynnt á fundi bæjarráðs í sl. viku. Bæjarstjóri þakkaði að lokum starfsmönnum fyrir framlag þeirra við undirbúning áætlunarinnar.
Forseti bæjarstjórnar tók undir orð bæjarstjóra og þakkaði starfsmönnum fyrir framlag þeirra til undirbúnings áætlunarinnar.
Til máls tóku: HSv, BH, JJB, JS, HP og KGÞ.Þeir bæjarfulltrúar sem tóku til máls tóku undir þakkir bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar til starfsmanna.
Samþykkt með sjö atkvæðum að vísa fjárhagsáætluninni til síðari umræðu í bæjarstjórn á reglulegum fundi þann þann 21. nóvember nk.
- 25. október 2012
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1095
Drög að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árin 2013 til 2016. Drögin eru til umræðu og vísunar til fyrstu umræðu í bæjarstjórn þann 31. október nk.
Drög að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árin 2013 til 2016. Drögin eru til umræðu og vísunar til fyrstu umræðu í bæjarstjórn þann 31. október nk.
Mættur er á fundinn undir þessum dagskrárlið Pétur J. Lockton (PJL) fjármálastjóri.Til máls tóku: BH, HSv, PJL, JS, JJB, KGÞ og ÓG.
Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa drögum að fjárhagsáætlun 2013 til 2016 til fyrri umræðu í bæjarstjórn á aukafundi þann 31. október nk.
- 24. október 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #591
Fjármálastjóri kynnir forsendur við gerð fjárhagsáætlunar og næstu skref.
Á fundinn undir þessum dagskrárlið var mættur Pétur J. Lockton (PJL) fjármálastjóri.$line$Bæjarstjóri og fjármálastjóri kynntu minnisblað með forsendum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2013 til 2016 og tilhögun við framlagningu og afgreiðslu hennar.$line$$line$Minnisblaðið lagt fram. Áætlað er að fjárhagsáætlunin verði til fyrri umræðu á aukabæjarstjórnarfundi þann 31. október.$line$$line$Erindið lagt fram á 591. fundi bæjarstjórnar.
- 18. október 2012
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1094
Fjármálastjóri kynnir forsendur við gerð fjárhagsáætlunar og næstu skref.
Á fundinn undir þessum dagskrárlið var mættur Pétur J. Lockton (PJL) fjármálastjóri.
Bæjarstjóri og fjármálastjóri kynntu minnisblað með forsendum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2013 til 2016 og tilhögun við framlagningu og afgreiðslu hennar.Til máls tóku: HSv, PJL, JS, BH, JJB og HP.
Minnisblaðið lagt fram. Áætlað er að fjárhagsáætlunin verði til fyrri umræðu á aukabæjarstjórnarfundi þann 31. október.
- 6. júní 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #582
Fjármálastjóri leggur fram vinnuferli vegna undirbúnings að fjárhagsáætlun 2013.
<DIV>Afgreiðsla 1076. fundar bæjarráðs, um vinnulag við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár, samþykkt á 582. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.</DIV>
- 24. maí 2012
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1076
Fjármálastjóri leggur fram vinnuferli vegna undirbúnings að fjárhagsáætlun 2013.
Til máls tóku: BH, HSv og PJL.
Pétur Lockton fjármálastjóri mætti á fundinn undir þessum lið.
Samþykkt með þremur atkvæðum að vinnulag við gerð fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár verði með þeim hætti sem greint er í minnisblaði bæjarstjóra og fjármálastjóra.