3. desember 2014 kl. 16:30,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Hafsteinn Pálsson (HP) Forseti
- Kolbrún G Þorsteinsdóttir (KGÞ) 1. varaforseti
- Bjarki Bjarnason (BBj) 2. varaforseti
- Haraldur Sverrisson aðalmaður
- Bryndís Haraldsdóttir (BH) aðalmaður
- Theódór Kristjánsson (TKr) aðalmaður
- Sigrún H. Pálsdóttir (SHP) aðalmaður
- Ólafur Ingi Óskarsson (ÓIÓ) aðalmaður
- Steinunn Dögg Steinsen (SDS) 1. varamaður
- Unnur Valgerður Ingólfsdóttir framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs
Fundargerð ritaði
Unnur V. Ingólfsdóttir framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá fundar
Fundargerðir til staðfestingar
1. Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1189201411019F
Fundargerð 1189. fundar bæjarráðs lögð fram til afgreiðslu á 639. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Samþykkt með níu atkvæðum.1.1. Erindi Strætó bs - beiðni um kynningu fyrir bæjarráð vegna skýrslu Mannvits 201411109
Á fundinn mæta Einar Kristjánsson og Smári Ólafsson frá Strætó bs.til að kynna skýrsluna.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1189. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
1.2. Erindi Báru Sigurðardóttur varðandi gatnagerðargjald 201409259
Erindi Báru Sigurðardóttur þar sem óskað er eftir bæjarráð endurskoði fyrri ákvörðun sína um greiðslu gatnagerðargjalds af viðbyggingu við Reykjadal 2.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1189. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
1.3. Erindi Sigrúnar H. Pálsdóttur bæjarfulltrúa um vígbúnað lögreglunnar. 201410314
Óskað er eftir umræðu um málið og að Mosfellsbær segi hug sinn í því.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1189. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
1.4. Erindi Samkeppniseftirlitsins varðandi kvörtun Gámaþjónustunnar hf. 201304064
Eftirlitið hefur lokið rannsókn málsins sem snýr að einokun sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu á bláum endurvinnslutunnum. Niðurstöður eftirlitsins lagðar fram.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1189. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
1.5. Heilsueflandi samfélag 201208024
Umsögn umhverfisnefndar vegna erindis Heilsuvinjar Mosfellsbæjar um framleiðslu og dreifingu fjölnota og umhverfisvænna innkaupapoka á öll heimili í Mosfellsbæ, sem bæjarráð óskaði eftir á 1188. fundi sínum.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1189. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
1.6. Skeggjastaðir - umsögn bæjarstjórnar um stofnun lögbýlis 201411075
Óskað er eftir umsögn bæjarráðs um stofnun lögbýlis að Skeggjastöðum í Mosfellsdal til að fylgja með í "Umsókn um stofnun lögbýlis" til Landbúnaðarráðurneytis.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1189. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
1.7. Sorpa-útboð á þjónustu við grenndargáma fyrir pappír, plast og gler. 201411077
Erindi Sorpu bs. varðandi útboð á þjónustu við grenndargáma fyrir pappír, plast og gler. Óskað eftir staðfestingu bæjarráðs.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1189. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
1.8. Erindi Sorpu bs - Rekstraráætlun 2015-2019 201411010
Rekstraráætlun Sorpu bs lögð fram.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1189. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
1.9. Fjármögnun skv. fjárhagsáætlun 2014 201401243
Fjármálastjóri kynnir fyrirhugaða lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1189. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
1.10. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2014 201403028
Fjármálastjóri leggur fram viðauka við fjárhagsáætlun ársins.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1189. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
2. Bæjarráð Mosfellsbæjar - 1190201411027F
Fundargerð 1190. fundar bæjarráðs lögð fram til afgreiðslu á 639. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Samþykkt með níu atkvæðum.2.1. Vatnsveita Mosfellsbæjar - þróun og endurbætur 2014-2019 201405143
Í framhaldi af umræðu um skýrslu um Vatnsveitu Mosfellsbæjar er lagt fram minnisblað varðandi möguleg ný vatnstökusvæði.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1190. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
2.2. Skeggjastaðir - umsögn bæjarstjórnar um stofnun lögbýlis 201411075
Lögð fram umsögn skipulagsnefndar, sem bæjarráð óskaði eftir á 1189. fundi.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1190. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
2.3. Erindi Ráðgjafar ehf varðandi lóðir og skipulag við Bröttuhlíð 201409301
Lögð fram umsögn skipulagsnefndar um skipulagsmál við Bröttuhlíð, sem bæjarráð óskaði eftir á 1181. fundi
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1190. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
2.4. Seljadalsnáma, ósk um breytingu á vinnslutímabili 201411043
Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa ásamt svörum nágranna/hagsmunaaðila við bréfi hans, þar sem erindi malbikunarstöðvarinnar Höfða um breytingu á vinnslutíma var kynnt.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1190. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
2.5. Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2015 - 2018 201405028
Ósk um mál á dagskrá. Tillögur Íbúahreyfingarinnar í tilefni fjárhagsáætlanagerðar fyrir árið 2015.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1190. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
2.6. Erindi Alþingis varðandi umsögn um tillögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um lögheimili, 33. mál. 201411083
Erindi Alþingis varðandi umsögn um tillögu til þingsályktunar um endurskoðun laga um lögheimili, 33. mál.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1190. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
2.7. Erindi Alþingis varðandi umsögn um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra, 52. mál 201411136
Erindi Alþingis varðandi umsögn um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra, 52. mál
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1190. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
2.8. Erindi Alþingis vegna umsagnar frumvarps til laga um tekjustofna sveitarfélaga (afnám lágmarksútsvars), 29. mál. 201411154
Erindi Alþingis vegna umsagnar frumvarps til laga um tekjustofna sveitarfélaga (afnám lágmarksútsvars), 29. mál.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1190. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
2.9. Erindi Alþingis vegna umsagnar um tillögu til þingsályktunar um millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll, 32. mál. 201411153
Erindi Alþingis vegna umsagnar um tillögu til þingsályktunar um millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll, 32. mál.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 1190. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
3. Fræðslunefnd Mosfellsbæjar - 301201411025F
Fundargerð 301. fundar fræðslunefndar lögð fram til afgreiðslu á 639. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Samþykkt með níu atkvæðum.3.1. Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2015 201405028
Fjárhagsáætlun á fræðslusviði fyrir 2015 kynnt
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 301. fundar fræðslunefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
3.2. Samræming á vetrarleyfum í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu, fyrirspurn frá fulltrúa Íbúahreyfingarinnar. 201411191
Svar við fyrirspurn frá fulltrúa Íbúahreyfingarinnar lagt fram til upplýsinga
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 301. fundar fræðslunefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
4. Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar - 186201411020F
Fundargerð 186. fundar menningarmálanefndar lögð fram til afgreiðslu á 639. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
4.1. Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2015 - 2018 201405028
Fjárhagsáætlun 2015-2018 lögð fram eftir fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 186. fundar menningarmálanefndir samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
4.2. Stjórnskipulag á bæjarskrifstofu 201410326
Tillögur Capacent að nýju stjórnskipulagi lagðar fram.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 186. fundar menningarmálanefndir samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
4.3. Hlégarður 201404362
Lagt fram minnisblað forstöðumanns þjónustu- og samskiptadeildar um stöðu mála varðandi rekstur á Hlégarði.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 186. fundar menningarmálanefndir samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
5. Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar - 378201411024F
Fundargerð 378. fundar skipulagsnefndar lögð fram til afgreiðslu á 639. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Samþykkt með níu atkvæðum.5.1. Erindi Ráðgjafar ehf varðandi lóðir og skipulag við Bröttuhlíð 201409301
Ráðgjöf ehf. f.h. Tré-búkka ehf. óskar 16. september 2014 eftir afstöðu Mosfellsbæjar m.a. til mögulegrar þéttingar byggðar á svæðinu. Bæjarráð óskar umsagnar skipulagsnefndar varðandi þann lið erindisins. Afgreiðslu frestað á 375. fundi.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 378. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
5.2. Helgafellshverfi 1. áfangi - breyting á deiliskipulagi við Vefarastræti 201401642
Tillaga að breytingum á deiliskipulagi var auglýst 9. október 2014 með athugasemdafresti til 20. nóvember 2014. Engin athugasemd barst.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 378. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
5.3. Laxatunga 105-127, tillaga að breytingu á deiliskipulagi 2014082082
Tillaga að breytingum á deiliskipulagi var auglýst 1. október 2014 með athugasemdafresti til 12. nóvember 2014. Engin athugasemd barst.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 378. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
5.4. Úr landi Miðdals, lnr. 125337, erindi um orlofsþorp 201309070
Erindi eigenda landsins um að það verði skipulagt undir orlofsbyggð/ferðaþjónustu tekið fyrir að nýju og lögð fram frekari gögn til upplýsingar. Áður á dagskrá 367. fundar og þá lögð fram tillaga að verkefnislýsingu deiliskipulags.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 378. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
5.5. Skeggjastaðir - umsögn bæjarstjórnar um stofnun lögbýlis 201411075
Óskað hefur verið eftir umsögn bæjaryfirvalda um umsókn um stofnun lögbýlis á landi úr Skeggjastaðalandi. Bæjarráð vísar erindinu til nefndarinnar til umsagnar.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 378. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
5.6. Leirvogstunga, breyting á deiliskipulagi - stækkun til austurs 201311089
Lögð fram tillaga að breytingum á deiliskipulagi Leirvogstungu, sem kynnt var íbúum í janúar 2014 en hefur verið í biðstöðu síðan.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 378. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
5.7. Erindi Strætó bs - beiðni um kynningu fyrir bæjarráð vegna skýrslu Mannvits 201411109
Bæjarráð hefur vísað skýrslu Mannvits um mögulega Flex þjónustu Strætós bs. til nefndarinnar til umsagnar. Á fundinn koma Einar Kristjánsson og Smári Ólafsson og kynna skýrsluna.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 378. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
6. Þróunar- og ferðamálanefnd - 45201411023F
Fundargerð 45. fundar þróunar-og ferðamálanefndar lögð fram til afgreiðslu á 639. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
6.1. Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2015 - 2018 201405028
Fjárhagsáætlun 2015-2018 lögð fram eftir fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 45. fundar þróunar-og ferðamálanefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
6.2. Stjórnskipulag á bæjarskrifstofu 201410326
Nýtt stjórnskipulag Mosfellsbæjar kynnt.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 45. fundar þróunar-og ferðamálanefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
6.3. Starfshópur um menningarviðburði 201410068
Tillaga að stofnun starfshóps sem fer með yfirumsjón bæjarhátíðarinnar, Í túninu heima. 636. fundur bæjarstjórnar vísar erindinu aftur til nefndarinnar til afgreiðslu.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 45. fundar þróunar-og ferðamálanefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
6.4. Bæklingur fyrir ferðamenn 201003315
Kynnt þátttaka Mosfellsbæjar í þemakorti um menningu á höfuðborgarsvæðinu.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 45. fundar þróunar-og ferðamálanefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
6.5. Verkefni Þróunar- og ferðamálanefndar. 201109430
Lögð fram drög að fundaáætlun fyrir næsta ár.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 45. fundar þróunar-og ferðamálanefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
7. Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar - 379201412002F
Fundargerð 379. fundar skipulagsnefndar lögð fram til afgreiðslu á 639. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
Samþykkt með átta atkvæðum.7.1. Uglugata 2-22, fyrirspurn um breytingar á deiliskipulagi 201411038
Stefán Hallsson f.h. lóðarhafa óskar 29.10.2014 eftir umfjöllun skipulagsnefndar um nýja tillögu að breyttu deiliskipulagi, sem felur í sér að íbúðum fjölgi um 5 miðað við gildandi skipulag og verði 8 í 2-ja hæða raðhúsum og 8 í 2-ja hæða fjölbýlum/tvíbýlum. Fyrri tillögu var hafnað á 377. fundi.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 379. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
7.2. Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2015 - 2018 201405028
Lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2015-2018 fyrir skipulags- og byggingarmál.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 379. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.$line$Bókun M-lista Íbúahreyfingarinnar$line$Fulltrúi M-lista gerir alvarlegar athugsemdir við að skipulagsnefnd skuli fá fjárhagsáætlun 2015-2018 til kynningar á sama degi og áætlunin er afgreidd í bæjarstjórn. Á þessum vinnubrögðum má ljóst vera hversu léttvægu hlutverki nefndinni er ætlað þjóna í augum D- og V-lista við gerð fjárhagsáætlunar.
7.3. Tillaga Önnu Sigríðar Guðnadóttur um fund með "Miðbæjarskólahópi" 201409246
Greint verður frá viðræðum við fulltrúa Foreldraráðs grunnskólanna í Mosfellsbæ, sbr. bókun á 374. fundi.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 379. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
7.4. Strætóleiðir og biðstöðvar í miðbæ, athugun. 201412009
Kynnt athugun Batterísins arkitekta sem beinist að því að finna heppilega staðsetningu á aðalstöð strætós í Miðbænum.
Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 379. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
Fundargerðir til kynningar
8. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 379201411026F
.
Fundargerð 256. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 639. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.
8.1. Fálkahöfði 2-4, umsókn um byggingarleyfi 201411079
Nova ehf Lágmúla 9 Reykjavík sækir um leyfi til að hækka áðursamþykkta loftnetssúlu fjarskiptabúnaðar á húsinu nr. 2 - 4 við Fálkahöfða um einn meter.
Fyrir liggur skriflegt samþykki fulltrúa húsfélagsins að Fálkahöfða 2.Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 256. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 639. fundi bæjarstjórnar.
8.2. Kvíslartunga 66, umsókn um byggingarleyfi 201409350
Sigmundur Hávarðsson Norðurbraut 22 Hafnarfirði sækir um leyfi til að byggja úr forsteyptum einingum tveggja hæða einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 66 við Kvíslartungu samkvæmt framlögðum gögnum.
Stærð: Bílgeymsla 44,3 m2, íbúðarrými 1. hæð 91,6 m2, íbúðarrými 2. hæð 96,7 m2, samtals 964,9 m3.Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 256. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 639. fundi bæjarstjórnar.
8.3. Leirvogstunga 14, umsókn um byggingarleyfi 201411047
VK verkfræðistofa Brautarholti 10 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr timbri einnar hæðar einbýlishús með bílgeymslu samkvæmt framlögðum gögnum. Áður samþykktir uppdrættir falli úr gildi.
Stærð húss: Bílgeymsla 32,0 m2, íbúð 142,5 m2, samtals 677,7 m3.Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 256. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 639. fundi bæjarstjórnar.
8.4. Völuteigur 19, umsókn um byggingarleyfi 201411167
Heilsan ehf Völuteigi 19 Mosfellsbæ sækir um leyfi fyrir ýmsum fyrirkomulagsbreytingum og að setja upp auglýsingaskilti á suðurhlið hússins í samræmi við framlögð gögn. Brunahönnuður hefur yfirfarið og áritað uppdrættina.
Heildarstærðir húsins breytast ekki.Niðurstaða þessa fundar:
Afgreiðsla 256. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa lögð fram til kynningar á 639. fundi bæjarstjórnar.
9. Fundargerð 205. fundar Strætó bs.201411258
Fundargerð 205. fundar Strætó bs.
Fundargerð lögð fram.
10. Fundargerð 204. fundar Strætó bs.201411257
Fundargerð 204. fundar Strætó bs.
Fundargerð lögð fram.
11. Fundargerð 141. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins201411251
Fundargerð 140. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Fundargerð lögð fram.
12. Fundargerð 140. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins201411250
Fundargerð 140. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Fundargerð lögð fram.
13. Fundargerð 139. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins201411249
Fundargerð 139. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Fundargerð lögð fram.
14. Fundargerð 138. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins201411246
Fundargerð 138. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Fundargerð lögð fram.
15. Fundargerð 137. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins201411245
Fundargerð 137. fundar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
Fundargerð lögð fram.
Almenn erindi
16. Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2015 - 2018201405028
Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2015-2018 lögð fram til seinni umræðu.
Við afgreiðslu málsins sátu Aldís Stefánsdóttir deildarstjóri þjónustu- og samskiptadeildar, Gunnhildur Sæmundsdóttir skólafulltrúi, staðgengill framkvæmdastjóra fræðslusviðs, Jóhanna B. Hansen framkvæmdastjóri umhverfissviðs, Pétur J. Lockton fjármálastjóri og Sigríður Indriðadóttir mannauðsstjóri.$line$$line$Forseti gaf bæjarstjóra orðið og fór bæjarstjóri yfir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2015 til 2018.$line$$line$Helstu niðurstöðutölur í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 A og B hluta eru eftirfarandi:$line$$line$Tekjur: 8.034 m.kr. $line$Gjöld: 7.364 m.kr.$line$Fjármagnsgjöld: 624 m.kr$line$Tekjuskattur 12 m.kr.$line$Rekstrarniðurstaða: 35 m.kr.$line$Eignir í árslok: 14.789 m.kr.$line$Eigið fé í árslok: 4.017 m.kr.$line$Fjárfestingar: 630 m.kr.$line$-------------------------------------------------------------$line$Útsvarsprósenta 2015. $line$Samþykkt á 638. fundur bæjarstjórnar 14,52%. $line$-------------------------------------------------------------$line$Álagningarprósentur fasteignagjalda fyrir árið 2015 eru eftirfarandi:$line$$line$Fasteignagjöld íbúðarhúsnæðis (A - skattflokkur)$line$Fasteignaskattur A 0,265% af fasteignamati húss og lóðar$line$Vatnsgjald 0,100% af fasteignamati húss og lóðar$line$Fráveitugjald 0,140% af fasteignamati húss og lóðar$line$Lóðarleiga A 0,340% af fasteignamati lóðar$line$$line$Fasteignagjöld stofnana skv. 3. gr. reglugerðar 1160/2005 (B - skattflokkur)$line$Fasteignaskattur B 1,320% af fasteignamati húss og lóðar$line$Vatnsgjald 0,100% af fasteignamati húss og lóðar$line$Fráveitugjald 0,140% af fasteignamati húss og lóðar$line$Lóðarleiga B 1,100% af fasteignamati lóðar$line$$line$Fasteignagjöld annars húsnæðis (C - skattflokkur)$line$Fasteignaskattur C 1,650% af fasteignamati húss og lóðar$line$Vatnsgjald 0,100% af fasteignamati húss og lóðar$line$Fráveitugjald 0,140% af fasteignamati húss og lóðar$line$Lóðarleiga C 1,100% af fasteignamati lóðar$line$$line$-------------------------------------------------------------$line$Gjalddagar fasteignagjalda eru níu, fimmtánda dag hvers mánaðar frá 15. janúar til og með 15. september. $line$Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Sé fjárhæð fasteignagjalda undir kr. 35.000 er gjalddagi þeirra 15. janúar með eindaga 14. febrúar.$line$$line$-------------------------------------------------------------$line$Eftirtaldar reglur taka breytingum og gilda frá 1.1.2015.$line$$line$Reglur um afslátt af fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega.$line$Samþykkt um systkinaafslátt.$line$Tekjuviðmiðum sbr. breytingu á neysluvísitölu, vegna viðbótarniðurgreiðslu v/tekna (leikskóla og dagforeldragæslu sbr. breytingu á neysluvísitölu).$line$$line$$line$-------------------------------------------------------------$line$Eftirfarandi gjaldskrár liggja fyrir og taka breytingum þann 1.1.2015 nema annað sé tekið fram. Almennt hækka neðangreindar gjaldskrár um 3,4%:$line$$line$Gjaldskrá, húsaleiga í þjónustuíbúðum fatlaðs fólks$line$Gjaldskrá, í félagsstarfi aldraðra$line$Gjaldskrá, húsnæðisfulltrúa Mosfellsbæjar$line$Gjaldskrá, húsaleiga í íbúðum aldraðra$line$Gjaldskrá, þjónustugjald í leiguíbúðum aldraðra$line$Gjaldskrá, húsaleiga í félagslegum íbúðum$line$Gjaldskrá, vegna heimsendingar fæðis$line$Gjaldskrá, félagsleg heimaþjónusta í Mosfellsbæ$line$Gjaldskrá, ferðaþjónusta fatlaðs fólks$line$Gjaldskrá, ferðaþjónusta í félagsstarfi aldraðra, fellur niður þar sem Strætó Bs tekur yfir þjónustuna.$line$$line$Gjaldskrá mötuneyta grunnskóla$line$Gjaldskrá gæsluvallar í Mosfellsbæ$line$Gjaldskrá þjónustusamnings vegna daggæslu barna í heimahúsi (frá 1. feb. 2015)$line$Gjaldskrá frístundaselja$line$Gjaldskrá Listaskóla (frá 1. ágúst 2015)$line$Gjaldskrá Skólahljómsveitar (frá 1. ágúst 2015)$line$Gjaldskrá íþróttamiðstöðvar og sundlaga$line$Gjaldskrá um systkinaafslátt$line$Gjaldskrá Ítóm 2015$line$$line$Gjaldskrá, Bókasafns Mosfellsbæjar$line$$line$Gjaldskrá, Vatnsveitu Mosfellsbæjar$line$Gjaldskrá, skipulags- og byggingarmála í Mosfellsbæ$line$Gjaldskrá, fyrir rotþróargjald í Mosfellsbæ$line$Gjaldskrá, um hundahald í Mosfellsbæ$line$Gjaldskrá, Hitaveitu Mosfellsbæjar$line$Gjaldskrá, fyrir fráveitugjald í Mosfellsbæ$line$$line$Gjaldskrá, fyrir sorphirðu í Mosfellsbæ$line$$line$Tillögur Samfylkingar við fjárhagsáætlun 2015.$line$$line$1. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að frístundaávísun verði hækkuð í 30 þúsund krónur haustið 2015. Embættismönnum verði falið að reikna út kostnað og koma með tillögur um hvernig mæta megi hækkuninni innan ramma fjárhagsáætlunar.$line$$line$Þar sem fyrir fundinum liggur önnur tillaga um almenna hækkun frístundaávísunar um 10% og sérstakar hækkanir fyrir barnmargar fjölskyldur verði litið svo á að þar sé um að ræða málsmeðferðartillögu hvað þessa tillögu varðar.$line$$line$2. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að tekjumörk vegna afsláttar eldri borgara og öryrkja á fasteignagjöldum verði hækkuð og færð til samræmis við tekjumörk sem þessir hópar njóta í Hafnarfirði og Kópavogi. $line$Embættismönnum verði falið að reikna út hvaða áhrif þessi aðgerð hefur á tekjur bæjarins og koma með tillögur um hvernig megi mæta þessari breytingu innan ramma fjárhagsáætlunar.$line$$line$Þar sem fyrir fundinum liggur önnur tillaga um hækkun tekjuviðmiða elli og örorkulífeyrisþega til útreiknings fasteignagjalda verði litið svo á að þar sé um að ræða málsmeðferðartillögu hvað þessa tillögu varðar.$line$$line$3. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að sett verði af stað tilraunaverkefni í einu hverfa bæjarins í anda Betri Reykjavikur þar sem ákveðin upphæð viðhaldsfjár verði eyrnamerkt framkvæmdum sem íbúar hverfisins velja. Kallað verði eftir tillögum íbúa um viðhaldsverkefni, þau kostnaðargreind og síðan gefist íbúum hverfisins kostur á að kjósa um hvaða verkefni farið verði í innan þess kostnaðarramma sem gefinn er. Reynslan af verkefninu verði síðan nýtt til að móta fyrirkomulag slíkra verkefna í öðrum hverfum bæjarins.$line$$line$4. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að á árinu 2015 verði hafinn undirbúningur að stofnun Ungmennahúss sem ætlað verði til félags- og tómstundastarfs ungs fólks á aldrinum 18 til 25 ára þar sem það hafi aðstöðu til að sinna hugðarefnum af ýmsum toga og til að efla tengsl sín á milli. $line$$line$Varið verði einni milljón króna á árinu 2015 til að hefja undirbúning verkefnisins. $line$$line$Samþykkt með níu atkvæðum að vísa þriðju og fjórðu tillögum S- lista Samfylkingar til frekari málsmeðferðar í bæjarráði.$line$$line$Tillögur Íbúahreyfingarinnar við seinni umræðu um fjárhagsáætlun 2015-2018.$line$$line$1. Mötuneyti við Varmárskóla$line$Bygging mötuneytis og kaup á kælibúnaði - 2 ár$line$a. Reist verði viðbygging fyrir mötuneyti við efri deild Varmárskóla. Undirbúningur og teikningar verði unnar á fjárhagsárinu 2015 og hafist handa við bygginguna árið 2016. Mötuneyti sem annað gæti 7-800 nemendum (200-300 í senn) hæfi rekstur að hausti 2016. Hönnun hússins taki mið af þeim varanlegu byggingum sem eru við skólann. Þar sem útsýni er einstakt (sérstaklega frá vestari enda skólans) mætti hugsa sér að viðbyggingin væri að miklum hluta úr gleri. Sú útfærsla fæli einnig í sér sparnað.$line$b. Þessa tillögu mætti útvíkka með fleiri þarfir í huga en mikil hörgull er á viðunandi húsnæði fyrir mynd- og verkmenntagreinar og lúðrasveit, - svo eitthvað sé nefnt.$line$c. Keyptur verði kælir fyrir matvæli í mötuneyti Varmárskóla í byrjun árs 2015 til viðbótar við þá útigeymslu sem nú er verið að endurbyggja. Um er að ræða kælibúnað fyrir innra rými. Að sögn starfsmanna leiðir aðstöðuleysið til mikillar sóunar á matvælum.$line$$line$2. Íþróttamannvirki í Mosfellsbæ$line$Langtímaáætlun um uppbyggingu íþróttamannvirkja í takt við íbúafjölgun - ½ ár$line$Ráðast þyrfti í það brýna verkefni á fjárhagsárinu 2015 að gera langtímaáætlun um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Mosfellsbæ þar sem tekið er mið af áætlaðri fjölgun íbúa en hún er sögð verða um 10% á næstu fjórum árum. $line$$line$3. Almenningsíþróttir á útisvæðum$line$Æfingatæki og bekkir á göngu- og hjólaleiðum - 6 ár$line$Hafist verði handa við að bæta aðstöðu til almenningsíþrótta, sem ekki krefjast greiðslu félagsgjalda, með því að koma fyrir bekkjum og æfingatækjum á vinsælum göngu-, hlaupa- og hjólaleiðum. Gert er ráð fyrir 3 ? 5 tækjum á hverjum stað.$line$$line$4. Göngu- og hjólastígar $line$Tenging göngu- og hjólastíga við biðskýli strætó - 4 ár$line$Hafist verði handa við að hanna og leggja göngu- og hjólastíg frá (1) Reykjum í Reykjahverfi að endastöð strætó við Reykjaveg, (2) frá Reykjalundi að stíg í útjaðri iðnaðarhverfis á Teigum og (3) frá Hlíðartúni að Vesturlandsvegi við nýja slökkvistöð. $line$$line$5. Fráveita $line$Leit að uppsprettum saurgerlamengunar í ám, sjó og vötnum - 1 ár$line$Gerð verði gangskör að því brýna lýðheilsuverkefni að leita uppi uppsprettur saurgerlamengunar í ám, sjó og vötnum í Mosfellsbæ. Beina þarf sjónum sérstaklega að rangtengingum frárennslis frá íbúðarhúsum og atvinnustarfsemi austan Vesturlandsvegar og í Töngum. Einnig verði girt fyrir að affallsvatns frá atvinnustarfsemi renni í ræsi og þaðan óhreinsað í viðtaka.$line$$line$6. Umhirða á útisvæðum og náttúruvernd$line$a. Eyðing ágengra framandi plantna - 10 ár$line$Hafist verði handa í byrjun sumars 2015 við að eyða ágengum framandi tegundum s.s. lúpínu, skógarkerfli og fleiri plöntum sem draga úr líffræðilegri fjölbreytni í náttúru Mosfellsbæjar. Árbakkar njóti forgangs þar sem fallvötn eiga stóran þátt í útbreiðslunni.$line$Um er að ræða langtímaverkefni sem nauðsynlegt er að fá íbúa í bænum og nágrannasveitarfélög til að taka þátt í.$line$b. Bakkaviðgerðir og umhirða stíga við Varmá - 5 ár$line$Viðgerðir hefjist á syðri bakka Varmár frá Reykjalundarvegi að Blómvangi á fjárhagsárinu 2015. Samhliða verði malarstígurinn meðfram ánni lagfærður með efni sem hæfir ljósum grágrýtisgrunninum í og við ána. $line$Um er að ræða fyrsta áfanga fimm ára verkefnis sem tekur til Varmársvæðisins frá friðlýstum ósum að Húsadal. Vinna þarf verkið í samráði við sérfræðinga í bakkaviðgerðum á Veiðimálastofnun.$line$c. Náttúruverndaráætlun - 1/2 ár$line$Hafin verði vinna við gerð náttúruverndaráætlunar fyrir Mosfellsbæ sem verði hluti af svæðis- og aðalskipulagi. Áætlunin er liður í að efla umhverfisvitund í tengslum við skipulag og framkvæmdir og stuðla þannig að því að áætlanir og umgengni taki mið af gæðum náttúru og sé í anda sjálfbærrar þróunar.$line$Þungamiðjan í verkefninu er að kortleggja lífríki og náttúrufar í Mosfellsbæ, s.s. búsvæði fugla- og fiska, gróður, landslag, votlendi, jarðhitasvæði, uppsprettur ferskvatns o.fl. Einnig að semja reglur um umgengni framkvæmdaaðila á náttúrusvæðum og fá til þess leiðsögn til þess bærrar stofnunar.$line$Umhverfisnefnd hefði umsjón með verkefninu og spurning hvort hægt væri að útvista verkefninu til nemenda í umhverfis- og náttúrufræðum í FaMos, LbhÍ eða HÍ. $line$d. Umhverfisfræðsla - 2 ár$line$1. Á fjárhagsárinu 2015 verði hafist handa við undirbúning fræðsluskilta um fuglalíf, leirur og fjörugróður á gönguleiðinni meðfram Leiruvogi. Undirbúningsvinna sérfræðinga færi fram á fjárhagsárinu 2015, hönnun og uppsetning vorið 2016. $line$2. Fræðslukvöld um náttúru og dýralíf að vori og hausti væru einnig tilvalin leið til að efla umhverfisvitund.$line$e. Vöktun friðlýstra svæða - langtímaverkefni$line$Ráðast þyrfti í reglubundna vöktun friðlýstra svæða í Mosfellsbæ. Einnig þarf að bæta aðgengi og umhirðu þeirra. Dæmi: Tungufoss og Álafoss.$line$$line$Bæjarfulltrúar D- og V-lista telja að ýmsar tillögur M-listans séu góðra gjalda verðar. Við bendum þó á að margar þeirra eru nú þegar í vinnslu og umræður um tillögurnar eiga heima í fagnefndum bæjarins en ekki við lokaafgeiðslu fjárhagsáætlunar því með því væri bæjarstjórn að taka fram fyrir hendurnar á nefndunum. Bæjarfulltrúar D- og V-lista vilja því beina því til M-listans að taka einstök mál upp á þeim vettvangi. Af ofangreindum ástæðum leggja fulltrúar D- og V-lista til að breytingatillögum M-listans verði vísað frá.$line$$line$Breytingartillaga S-lista Samfylkingar við tillögu D- og V-lista.$line$$line$Í stað þess að vísa tillögu Íbúahreyfingarinnar frá verði henni vísað til nefnda með sömu rökum og koma fram í tillögu meirihlutans.$line$$line$M-listi Íbúahreyfingar leggur til að hver eftirtalinna tillagna fyrir sig verið borin upp til atkvæðagreiðslu.$line$$line$Tillaga:$line$1. Mötuneyti við Varmárskóla. $line$Samþykkt með sex atkvæðum gegn einu að vísa tillöginni frá.$line$2. Íþróttamannvirki í Mosfellsbæ$line$Samþykkt með sex atkvæðum gegn einu að vísa tillöginni frá.$line$3. Almenningsíþróttir á útisvæðumSamþykkt með sex atkvæðum gegn einu að vísa tillöginni frá.$line$Samþykkt með sex atkvæðum gegn einu að vísa tillöginni frá.$line$4. Göngu- og hjólastígar $line$Samþykkt með sex atkvæðum gegn einu að vísa tillöginni frá.$line$5. Fráveita $line$Samþykkt með sex atkvæðum gegn einu að vísa tillöginni frá.$line$6. Umhirða á útisvæðum og náttúruvernd$line$Samþykkt með sex atkvæðum gegn einu að vísa tillöginni frá.$line$$line$Fulltrúi M-lista Íbúahreyfingarinnar mótmælir harðlega þeirri ósanngjörnu málsmeðferð D- og V-lista að visa breytingatillögum Íbúahreyfingarinnar við fjárhagsáætlun 2015 frá á þeirri forsendu að ræða þurfi þær í nefndum. Flestar þessara tillagna hafa verið til umræðu og hlotið samþykki í nefndum og jafnvel bæjarstjórn. Það sem upp á vantar er að gert sé ráð fyrir fjármagni til að tryggja framgang þeirra og út á það ganga flestar tillögurnar.$line$$line$Bókun D- og V-lista$line$Bæjarfulltrúar D- og V-lista telja að ýmsar tillögur M-listans séu góðra gjalda verðar. Við bendum þó á að margar þeirra eru nú þegar í vinnslu og umræður um tillögurnar eiga heima í fagnefndum bæjarins en ekki við lokaafgeiðslu fjárhagsáætlunar því með því væri bæjarstjórn að taka fram fyrir hendurnar á nefndunum. Bæjarfulltrúar D- og V-lista vilja því beina því til M-listans að taka einstök mál upp á þeim vettvangi. Af ofangreindum ástæðum samþykktu fulltrúar D- og V-lista að vísa breytingatillögum M-listans frá.$line$$line$Tillögur meirihluta D- og V-lista að breytingum á fjárhagsáætlun 2015 við seinni umræðu 3. des. 2014.$line$$line$1. Lagt er til að upphæð frístundaávísunar hækki um 10% 1. júlí 2015. Jafnframt verði frá sama tíma ávísunin 25% hærri fyrir annað barn innan sömu fjölskyldu og 50% hærri fyrir þriðja barn og fleiri innan sömu fjölskyldu. Kostnaður við þessa breytingu er um 5 mkr. Samkvæmt meðfylgjandi minnisblaði Eddu Davíðsdóttur tómstundafulltrúa Mosfellsbæjar.$line$$line$2. Lagt er til að veitt verði 4,5 mkr. til að auka niðurgreiðslur til foreldra með börn sín í sjálfstætt reknum leikskólum. Skólaskrifstofa móti reglur um framkvæmd og fyrirkomulag þessara niðurgreiðslna og leggi fyrir bæjarráð. Að öðru leiti er vísað til meðfylgjandi minnisblaðs Gunnhildar Sæmundsdóttur skólafulltrúa. $line$$line$3. Lagt er til að tekjuviðmið tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega til útreiknings á afslætti fasteignagjalda verði breytt. Breytingin felur í sér rýmkun á tekjuviðmiðum þannig að fleiri njóta afsláttar af fasteignagjöldum. Kostnaður við þessa breytingu rúmast innan þegar framlagðrar fjárhagsáætlunar skv. minnisblaði Péturs Lockton fjármálastjóra Mosfellsbæjar. $line$$line$$line$Ofangreindar breytingar leiða til kostnaðarhækkana samtals að upphæð 9,5 mkr. Lagt er til að því verði mætt með þeim breytingum á áætlun sem lagðar eru til í minnisblaði fjármálastjóra sem gera ráð fyrir bættri afkomu að sömu fjárhæð.$line$$line$Tillögurnar eru samþykktar með níu atkvæðum.$line$$line$Fjármálastjóra er falið að útfæra samþykktar tillögur að breytinu á fjáhagsáætlun í samræmi við samþykkt þessa. Tillagan er samþykkt með níu atkvæðum.$line$$line$Forseti bar tillögu að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2015 upp í heild sinni. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 var samþykkt með átta atkvæðum.$line$$line$Bókun S-lista Samfylkingar vegna fjárhagsáætlunar Mosfellsbæjar 2015.$line$Fjárhagsáætlun er að stærstu leyti stefnumarkandi plagg meirihluta sjálfstæðismanna og VG hvað varðar rekstur og framkvæmdir næstu ára og lýsir þeim áherslum sem hann vill vinna að. Fulltrúar minnihluta hafa ekki tekið þátt í vinnu við áætlunina á fyrri stigum. $line$$line$Samfylkingin lagði fram fjórar tillögur við fyrri umræðu um fjárhagsáætlunina og óskaði eftir að embættismönnum yrði falið að kostnaðargreina þær og leggja til hvernig koma mætti þeim fyrir innan ramma fjárhagsáætlunar. Nú liggur fyrir að tvær af þessum tillögum S lista fá gott brautargengi meirihlutans í fjárhagsáætlun, þ.e. hækkun frístundaávísunar til barna og hækkun tekjuviðmiða eldri borgara og öryrkja til afsláttar af fasteignagjöldum, báðar í anda þeirra tillagna sem bæjarfulltrúar S-lista báru fram og eru bókaðar í fundargerð bæjarstjórnarfundar 5. nóvember.$line$$line$Þá er ánægjulegt að sjá að gjaldskrár leikskóla bæjarins hækka ekki frá fyrra ári og að áætlanir eru um að auka niðurgreiðslur vegna barna sem eru í sjálfstætt reknum leikskólum á höfuðborgarsvæðinu, en Mosfellsbær hefur verið eftirbátur nágrannasveitarfélaganna hvað þær niðurgreiðslur varðar.$line$$line$Þá ætlar meirihlutinn að halda áfram með úrbætur í fráveitumálum sveitarfélagsins og vonandi að taka myndarlega á mengunarvörnum í bæjarfélaginu líkt og bæjarfulltrúi Samfylkingar lagði mikla áherslu á síðastliðið kjörtímabil og er það vel. Þá er haldið áfram á þeirri braut að auka við framlög til uppbyggingar skólamannvirkja en Samfylkingin marg benti á nauðsyn þess á síðasta kjörtímabili.$line$$line$Í ljósi þess að meirihlutinn hefur tekið tillit til tveggja tillagna Samfylkingarinnar í breytingum á fjárhagsáætlun fyrir aðra umræðu og vísa hinum tveimur tillögunum, varðandi undirbúning stofnunar Ungmennahúss og tilraunaverkefni varðandi íbúalýðræði um aukna aðkomu íbúa að vali á viðhaldsverkefnum í hverfum bæjarins, til nánari umfjöllunar í bæjarráði , þá samþykkir Samfylkingin framlagða fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2015-18.$line$$line$Ólafur Ingi Óskarsson, bæjarfulltrúi$line$Steinunn Dögg Steinsen, varabæjarfulltrúi$line$$line$$line$Bókun V- og D- lista við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.$line$$line$Samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 verður rúmlega 35 mkr. afgangur af rekstri Mosfellsbæjar eftir fjármagnsliði. Veltufé frá rekstri verður jákvætt um 762 mkr. eða um 10% af heildartekjum. Gert er ráð fyrir að skuldir sem hlutfall af tekjum muni lækka. $line$$line$Helstu áherslur í fjárhagsáætlun 2015 eru eftirfarandi:$line$-Að afgangur sé af rekstri bæjarins og veltufé frá rekstri verði jákvætt um 10% af tekjum.$line$-Að leikskólagjöld hækki ekki. $line$-Að aðrar gjaldskrár bæjarins verði þær sömu að raungildi en hækki til samræmis við verðlag.$line$-Að frístundaávísun hækki um 10% og hækki sérstaklega fyrir barnmargar fjöskyldur$line$-Að haldið verði áfram undirbúningi nýrra skólabygginga í samræmi við stefnumótun þar um.$line$-Að afsláttur af fasteignagjöldum til tekjulágra eldri borgara verði aukinn. $line$-Að áfram verði unnið að þróa og bæta þjónustu við fólk með fötlun.$line$-Að haldið verði áfram þróun á rafrænni þjónustu sveitarfélagsins.$line$-Að valfrelsi verði aukið með hækkuðum niðurgreiðslum til sjálfstætt starfandi leikskóla. $line$-Að lögð sé áhersla á áframhaldandi innleiðingu á Heilsueflandi samfélagi. $line$$line$Fjárhagsstaða Mosfellsbæjar er traust og reksturinn ábyrgur. Skuldastaða sveitarfélagsins er vel viðunandi miðað við þá uppbyggingu sem átt hefur sér stað á undanförnum árum samfara miklum vexti og fjölgun íbúa. Mosfellsbær hefur staðið fyrir miklum framkvæmdum í bænum síðustu ár. Þar má nefna byggingu hjúkrunarheimilis og framhaldsskóla ásamt nýbyggingu við íþróttamiðstöðina að Varmá og fjölda annarra smærri verkefna. Nýir kjarasamningar starfsmanna sveitarfélaga hafa talsverð áhrif á áætlun næsta árs. Laun hækka umfram tekjur og er haft að leiðarljósi að aðlaga reksturinn að því.$line$$line$Mikil og ötul vinna fer í fjárhagsáætlunargerð ár hvert. Sú vinna er leidd áfram af bæjarstjóra, fjármálastjóra, framkvæmdarstjórum og forstöðumönnum. Við viljum þakka öllu því góða starfsfólki sem og fulltrúum í nefndum og ráðum fyrir afar óeigingjarnt starf við að koma þessari áætlun saman.