Mál númer 201401243
- 3. desember 2014
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #639
Fjármálastjóri kynnir fyrirhugaða lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Afgreiðsla 1189. fundar bæjarráðs samþykkt á 639. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 20. nóvember 2014
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1189
Fjármálastjóri kynnir fyrirhugaða lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Undir þessum dagskrárlið mætti Pétur Jens Lockton fjármálastjóri Mosfellsbæjar.
Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti með þremur atkvæðum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 172.000.000 kr., í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til fjármögnunar hluta framkvæmda við skóla- og íþróttamannvirkja, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Lántakan er í samræmi við gildandi fjárhagsáætlun og samþykkta viðauka nr. 1 til 3.
Jafnframt var Haraldi Sverrissyni, bæjarstjóra, kt. 141261-7119 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Mosfellsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari. - 27. ágúst 2014
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #633
Fjármálastjóri kynnir fyrirhugaða lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkir með níu atkvæðum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 500.000.000 kr., í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til að endurfjármagna afborganir lána sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. og til fjármögnunar hluta framkvæmda við skóla- og íþróttamannvirkja, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. $line$Jafnframt er Haraldi Sverrissyni, bæjarstjóra, kt. 141261-7119 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Mosfellsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
- 14. ágúst 2014
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1175
Fjármálastjóri kynnir fyrirhugaða lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Á fundinn undir þessum dagskrárlið var mættur Pétur J. Lockton (PJL) fjármálastjóri.
Samþykkt með þremur atkvæðum að tillögu fjármálastjóra að tekið sé óverðtryggt langtímalán að fjárhæð 500 mkr. hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. til 15 ára með breytilegum vöxtum sbr. meðfylgjandi drög að lánssamningi nr. 1407_29 og er lántakan í samræmi við gildandi fjárhagsáætlun.
- 12. febrúar 2014
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #620
Fjármálastjóri kynnir fyrirhugaða sölu skuldabréfa í skuldabréfaflokknum MOS 13 1.
Afgreiðsla 1153. fundar bæjarráðs, að heimila bæjarstjóra að ganga frá útgáfu og sölu úr skuldabréfaflokknum "MOS 13 1" fyrir allt að 500 mkr. að nafnverði, samþykkt á 620. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 6. febrúar 2014
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1153
Fjármálastjóri kynnir fyrirhugaða sölu skuldabréfa í skuldabréfaflokknum MOS 13 1.
Bæjarráð samþykkir að heimila bæjarstjóra að ganga frá útgáfu og sölu úr skuldabréfaflokknum "MOS 13 1" fyrir allt að 500 mkr að nafnverði.