Íþróttafólk Mosfellsbæjar 2012
Lára Kristín Pedersen
Knattspyrnukona frá Aftureldingu var kjörin íþróttakona Mosfellsbæjar árið 2012.
Lára er framúrskarandi knattspyrnukona og eitt mesta efni sem Afturelding hefur alið hingað til. Hún er aðeins 18 ára gömul og þrátt fyrir ungan aldur, hefur hún verið lykilmaður og ein af máttarstólpum meistaraflokks kvenna síðastliðin tvö ár, hún hefur einnig verið fyrirliði liðsins í þó nokkrum leikjum.
Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban
Knattspyrnumaður frá Aftureldingu var kjörinn íþróttamaður Mosfellsbæjar árið 2012.
Steinarr er fæddur 1987 og alinn upp hér í Mosfellbænum og lék knattspyrnu með Aftureldingu í öllum yngri flokkum. Þar átti hann farsælan feril og var lykilmaður í öllum liðum.