Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
19. júní 2024

Mos­fells­bær ósk­ar eft­ir til­boð­um í: „Út­skipt­ingu lampa fyr­ir gatna- og stíga­lýs­ingu“, MOS202401528.

Út­boð­ið varð­ar út­skipt­ingu 1100 lampa í gatna- og stíga­lýs­ing­ar­kerfi í eigu Mos­fells­bæj­ar. Mos­fells­bær er bú­inn að gera samn­ing um kaup á lömp­um sem verða af­hent­ir í tveim hlut­um, ann­ars veg­ar sept­em­ber/októ­ber 2024 og hins veg­ar í maí/júní 2025 og skal allri upp­setn­ingu vera lok­ið 31. des­em­ber 2025.

Út­boðs­gögn verða af­hent í tölvu­pósti í gegn­um ráð­gjafa verk­kaupa, gudjon@liska.is frá og með 20. júní 2024 og verð­ur hægt að nálg­ast gögn til og með 12. júlí 2024.

Til­boð­um ásamt um­beðn­um gögn­um skal skila ra­f­rænt í tölvu­pósti til gudjon@liska.is. Bjóð­andi fær stað­fest­ingar­póst þeg­ar hann hef­ur skilað til­boði. Bjóð­andi ber ábyrgð á að til­boð ber­ist á rétt­um tíma og bjóð­end­ur eru hvatt­ir til að hefja tím­an­lega vinnu við að skila þeim inn.

Skila­frest­ur til­boða er til kl. 10:00 fimmtu­dag­inn 18. júlí 2024.

Opn­un til­boða fer fram ra­f­rænt að við­stödd­um þeim bjóð­end­um sem þess óska. Við opn­un til­boða verða les­in upp nöfn til­boðs­gjafa og heild­ar­til­boðs­fjár­hæð­ir.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00