Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Malbikun í Mosfellsbæ.
Mosfellsbær óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í útboði vegna malbikunar í Mosfellsbæ. Verktaki sem fær verkefnið mun þurfa að gera ráð fyrir og taka tillit til m.a. nágranna, umferð íbúa sem og annarra verktaka í og við framkvæmdasvæði.
Helstu verkþættir:
Um er að ræða, nýlögn malbiks á götur og stíga, fræsun, yfirlagnir og viðgerðir á malbiki gatna og stíga í Mosfellsbæ.
Verkinu skal að fullu lokið samkvæmt verkefnalista fyrir árslok 2019.
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með kl. 10:00 á miðvikudeginum 24. apríl 2019.
Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, eigi síðar en miðvikudaginn 8. maí kl.13:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.