Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Leiksvæði í Leirvogstunguhverfi og Helgafellshverfi.
Verkið felur í sér uppbyggingu og frágang á tveimur leiksvæðum í Helgafells- og Leirvogstunguhverfi með landmótun, leiktækjum, búnaði og yfirborðsfrágangi ásamt lýsingu.
Helstu magntölur:
- Uppúrtekt og tilflutningur á jarðvegi – um 850 m³
- Hellulagnir – um 250 m²
- Grjóthleðslur – um 30 m
- Hlaðinn kantur úr steyptum hleðslusteini – um 50 m²
- Grjótkörfur – um 30 m
- Fallvarnir/slitlag – um 110 m²
- Leiktæki og búnaður – um 30 stk
- Ljósastólpar – um 5 stk
- Þökulagning – um 500 m²
- Grassáning – um 500 m²
Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2020.
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með klukkan 11:00 á þriðjudeginum 26. maí 2020. Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, eigi síðar en föstudaginn 12. júní 2020 kl.11:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.