Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í: LED lampa fyrir götu- og stígalýsingu.
Tilboðið felst í að útvega 1.100 LED lampa fyrir götu- og stígalýsingu í eldri hverfi í Mosfellsbæ ásamt og með í ný hverfi sem verið er að reisa. Svæðið sem lamparnir eru ætlaðir í samanstendur af húsagötum, opnum svæðum og stígum. Gerðar eru kröfur til þess að bjóðandi bjóði lampa sem uppfylla útlitskröfur auk tæknilegra og ljóstæknilegra eiginleika og komi vel út í lífferilskostnaðargreiningu, LCC.
Samningur nær til tveggja ára. Frávikstilboð verða ekki leyfð.
Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti í gegnum ráðgjafa verkkaupa, gudjon@liska.is frá og með 1. mars 2024 og verður hægt að nálgast gögn til og með 22. mars 2024.
Tilboðum ásamt umbeðnum gögnum skal skila rafrænt í tölvupósti til gudjon@liska.is. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og bjóðendur eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.
Skilafrestur tilboða hefur verið framlengdur til fimmtudagsins 18. apríl 2024 kl. 10:00.
Opnun tilboða fer fram rafrænt að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Við opnun tilboða verða lesin upp nöfn bjóðenda og heildarlífsferilskostnaðarverð af tilboðseyðublaði.
Útboð þetta er auglýst á evrópska efnahagssvæðinu (EES, 118772-2024).
Tengt efni
Útboð: Gangstéttar og frágangur í Mosfellsbæ
Mosfellsbær óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í útboði vegna gangstéttasteypu og frágangs á ýmsum stöðum í Mosfellsbæ.
Útboð: Rammasamningur Mosfellsbæjar um tímavinnu iðnaðarmanna
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í: Rammasamning um tímavinnu iðnaðarmanna.
Útboð á hirðu úrgangs við heimili í Mosfellsbæ og Garðabæ 2024-2029
Mosfellsbær og Garðabær óska eftir tilboðum í hirðu úrgangs.