Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
11. mars 2014

Mos­fells­bær aug­lýs­ir sum­arstörf laus til um­sókn­ar fyr­ir ungt fólk. Um­sókn­ar­frest­ur er til og með 30. mars 2014.

Sækja skal um í gegn­um þjón­ustugátt Mos­fells­bæj­ar.

Þau ganga fyr­ir um sum­arstörf sem eiga lög­heim­ili í Mos­fells­bæ.

Hefð­bund­in sum­arstörf

Ein­göngu fyr­ir 18 ára og eldri.

  • Yf­ir­flokks­stjóri í Vinnu­skóla Mos­fells­bæj­ar (lág­marks­ald­ur 23 ára á ár­inu)
  • Flokks­stjóri í Vinnu­skóla Mos­fells­bæj­ar (lág­marks­ald­ur 20 ára á ár­inu)
  • Flokks­stjóri í garð­yrkju­deild (lág­marks­ald­ur 20 ára ár­inu)
  • Sund­lauga­vörð­ur í íþróttamið­stöð (lág­marks­ald­ur 20 ára á ár­inu)
  • Að­stoð við fötluð börn og ung­menni (lág­marks­ald­ur 18 ára á ár­inu)
  • Sum­ar­starfs­mað­ur Þjón­ustu­störf/ í garð­yrkju­deild (lág­marks­ald­ur 17 ára á ár­inu)
  • Starf í íþrótta- og tóm­stunda­skóla Mos­fells­bæj­ar (lág­marks­ald­ur 20 ára á ár­inu)

Sum­ar­átaks­störf

Ein­göngu 17 ára til 20 ára geta sótt um þessi störf (ung­menni fædd á ár­un­um 1994 – 1997). Mark­mið­ið er að þau ung­menni sem hafa tak­mark­að­an að­g­ang að vinnu­mark­aði vegna ald­urs njóti for­gangs að sum­ar­átaks­störf­um.

  • Að­stoð­ar­flokks­stjóri í Vinnu­skóla
  • Bað­varsla og af­greiðsla í íþróttamið­stöð
  • Golf­völl­ur­inn Bakka­kot
  • Golf­klúbbur­inn Kjöl­ur
  • Hesta­manna­fé­lag­ið Hörð­ur
  • Knatt­spyrnu­skóli Aft­ur­eld­ing­ar
  • Skáta­fé­lag­ið Mosverj­ar
  • Skóg­rækt­ar­fé­lag Mos­fells­bæj­ar
  • Starf í leik­skóla
  • Tungu­bakk­ar
  • Moto Mos
  • Hitt hús­ið (sum­arstarf fyr­ir ung­menni með fötlun)

Launa­kjör eru sam­kvæmt kjara­samn­ingi Starfs­manna­fé­lags Mos­fells­bæj­ar og Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga.

Um­sókn­ar­frest­ur um öll störf er til og með 30. mars. Vin­sam­leg­ast at­hug­ið að ekki verð­ur tek­ið við um­sókn­um sem að berast eft­ir þann tíma.

Þau sem sækja um á rétt­um tíma en fá ekki starf í fyrstu um­ferð fara sjálf­krafa á bið­lista eft­ir sum­arstarfi.

Reynt verð­ur að svara öll­um um­sókn­um fyr­ir 30. apríl.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00