Umhverfisnefnd óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2023.
Umhverfisnefnd veitir árlega viðurkenningar til aðila sem skarað hafa fram úr í umhverfismálum eða fegrað hafa umhverfið með eftirtektarverðum hætti. Hægt er að tilnefna einstaklinga, garða, götur, stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki í Mosfellsbæ. Sérstök athygli er vakin á að í ár er hægt að tilnefna í flokkunum Plokkari ársins og Tré ársins.
Tilnefningar skal senda rafrænt í gegnum þjónustugátt Mosfellsbæjar fyrir 1. ágúst 2023.
Senda inn tilnefningar
Umhverfisnefnd veitir viðurkenningarnar við sérstaka athöfn á bæjarhátíðinni Í túninu heima í lok ágúst.
Tengt efni
Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023 afhentar á bæjarhátíð
Hátíðardagskrá var í Hlégarði sunnudaginn 27. ágúst í tengslum við bæjarhátíðina Í túninu heima þar sem meðal annars voru veittar umhverfisviðurkenningar.
Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023 - Hægt að senda tilnefningar til og með 31. júlí
Umhverfisnefnd óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2023.
Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar og tré ársins 2022
Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2022 voru afhentar við hátíðlega athöfn í Hlégarði þann 28. ágúst sl.