Umhverfisnefnd veitir árlega umhverfisviðurkenningar völdum aðilum í Mosfellsbæ sem skarað hafa fram úr í umhverfismálum.
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2022. Hægt er að tilnefna einstaklinga, garða, götur, stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki í Mosfellsbæ.
Tilnefningar skal senda rafrænt í gegnum þjónustugátt Mosfellsbæjar fyrir 1. ágúst 2022.
Umhverfisnefnd fer yfir innsendar tilnefningar og veitir þeim sem verða fyrir valinu viðurkenningar við sérstaka athöfn á bæjarhátíðinni Í túninu heima í lok ágúst.
Tengt efni
Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar og tré ársins 2022
Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2022 voru afhentar við hátíðlega athöfn í Hlégarði þann 28. ágúst sl.
Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2021
Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2021 voru afhentar við hátíðlega athöfn í Listasal Mosfellsbæjar.
Tilnefningar til umhverfisviðurkenninga fyrir 2021
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2021.