Í dag, mánudaginn 28 júní munu Veitur hefja verkefni með Mílu og Nova við gröft á lagnaskurði vegna nýrrar heimtaugar í fjarskiptamastur sem á að fara reisa.
Vinnusvæðið er meðfram reiðstígnum við Leirvogstungu. Þetta tekur nokkra daga, gert er ráð fyrir að vinna hefjist í dag, mánudag, og verði lokið í næstu viku.
Þetta felur í sér umferð vinnuvéla og einnig gæti verið eitthvað af tækjum og tólum á reiðstígnum. Reynt verður að valda sem minnstu raski og hægt er.