Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
20. apríl 2012

Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd Mos­fells­bæj­ar veitti á dög­un­um 13 ung­menn­um styrk til að stunda sína íþrótt-, tóm­st­und eða list yfir sum­ar­tím­anna.

Það var lang­ur listi hæfra um­sækj­enda sem að sótti um. Við val­ið  styðst nefnd­in við regl­ur sem byggja á vilja Mos­fells­bæj­ar til að koma til móts við ung­menni sem, vegna tóm­stunda sinna, geta ekki með sama hætti og jafn­aldr­ar þeirra stundað laun­uð störf. Þessi meg­in­regla auk regl­unn­ar um að jafna beri styrkj­um milli kynja, ald­urs­hópa, list- íþrótta- og tóm­stunda­greina er það sem að íþrótta- og tóm­stund­ar­nefnd styðst við þeg­ar að val­ið er í þenn­an hóp.

Um­sækj­end­ur áttu það all­ir sam­eig­in­legt að þau lang­ar og þurfa að nota sum­ar­tím­ann til æf­inga, koma fram á við­burð­um eða vera við keppni.

Þau sem hlutu styrk­inn í ár eru:

  • Arna Rún Kristjáns­dótt­ir, til að stunda golf
  • Böðv­ar Páll Ás­geirs­son, til að stunda hand­bolta
  • Emil Tumi Víg­lunds­son, til að stunda götu­hjól­reið­ar
  • Friðrik Karl Karls­son, til að stunda frjáls­ar íþrótt­ir
  • Gunn­ar Birg­is­son, til að stunda skíða­göngu
  • Hall­dóra Þóra Birg­is­dótt­ir, til að stunda knatt­spyrnu
  • Hann­ah Rós Sig­urð­ar­dótt­ir, til að stunda kvik­mynda­gerð­arlist
  • Kjart­an Gunn­ars­son, til að iðka morotcross
  • Sig­urð­ur Kári Árna­son, til að leggja stund á stærð­fræði
  • Sig­urpáll Mel­berg Páls­son,til að stunda knatt­spyrnu
  • Stefán Ás Ingvars­son, til að stunda badm­inton
  • Sús­anna Katarína Guð­munds­dótt­ir, til að stunda hestaí­þrótt­ir
  • Þuríð­ur Björg Björg­vins­dótt­ir, til að stunda list­skauta­hlaup
Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-13:00