Mosfellsbær auglýsir laus sumarstörf. Sótt er um störfin á ráðningarvef Mosfellsbæjar og þar er einnig að finna allar upplýsingar um störf í boði.
- Yfirflokksstjóri í Vinnuskóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 23 ára á árinu).
- Flokksstjóri í Vinnuskóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 20 ára á árinu).
- Aðstoðarflokksstjóri í Vinnuskóla (18-20 ára).
- Flokksstjóri í Þjónustustöð / garðyrkjudeild (lágmarksaldur 20 ára árinu).
- Almenn störf í Þjónustustöð / garðyrkjudeild (lágmarksaldur 17 ára á árinu).
- Þjónustustörf og sundlaugargæsla íþróttamiðstöðvum (lágmarksaldur 18 ára á árinu).
- Starf í íþrótta- og tómstundaskóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 17 ára á árinu).
- Yfirumsjón með stuðningi í sumarstarfi fyrir fötluð börn og ungmenni (lágmarksaldur 23 ára á árinu).
- Aðstoð við fötluð börn og ungmenni (lágmarksaldur 18 ára á árinu).
Umsóknarfrestur er til 13. mars 2022.
Vinsamlega athugið að ekki verður tekið við umsóknum sem að berast eftir þann tíma. Þau sem sækja um en fá ekki starf í fyrstu umferð fara sjálfkrafa á biðlista eftir sumarstarfi.
Þau ganga fyrir um sumarstörf sem eiga lögheimili í Mosfellsbæ.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Mosfellsbæjar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Tengt efni
Sumarstörf hjá Mosfellsbæ 2024 - Umsóknarfrestur er til og með 13. mars
Mosfellsbær auglýsir sumarstörf fyrir ungt fólk í Mosfellsbæ.
Sumarstörf hjá Mosfellsbæ 2024
Mosfellsbær auglýsir sumarstörf fyrir ungt fólk í Mosfellsbæ.
Sumarstörf hjá Mosfellsbæ 2023 - Umsóknarfrestur til og með 13. mars
Mosfellsbær auglýsir sumarstörf fyrir ungt fólk í Mosfellsbæ.