Mosfellsbær auglýsir til umsóknar laus sumarstörf fyrir ungmenni sumarið 2019.
Opnað verður fyrir umsóknir 25. febrúar. Umsóknarfrestur er til 23. mars. Sækja skal um í gegnum Ráðningarvef Mosfellsbæjar. Þau ganga fyrir um sumarstörf sem eiga lögheimili í Mosfellsbæ.
Auglýstar eru eftirtaldar stöður:
- Yfirflokksstjóri í Vinnuskóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 23 ára á árinu)
- Flokksstjóri í Vinnuskóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 20 ára á árinu)
- Aðstoðarflokksstjóri í Vinnuskóla (18–20 ára)
- Flokksstjóri í Þjónustustöð / garðyrkjudeild (lágmarksaldur 20 ára árinu)
- Almenn störf í Þjónustustöð / garðyrkjudeild (lágmarksaldur 17 ára á árinu)
- Þjónustustörf og sundlaugargæsla íþróttamiðstöðvum (lágmarksaldur 20 ára á árinu
- Starf í íþrótta- og tómstundaskóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 17 ára á árinu)
- Yfirumsjón með sumarstarfi fyrir fötluð börn og ungmenni (lágmarksaldur 23 ára á árinu)
- Aðstoð við fötluð börn og ungmenni (lágmarksaldur 18 ára á árinu)
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Mosfellsbæjar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur um öll störf er til og með 23. mars 2019.
Vinsamlegast athugið að ekki verður tekið við umsóknum sem að berast eftir þann tíma.
Þau sem sækja um á réttum tíma en fá ekki starf í fyrstu umferð fara sjálfkrafa á biðlista eftir sumarstarfi.
Öllum umsóknum sem að skilað er innan tilskilins umsóknafrests verður svarað fyrir 20. apríl.
Tengt efni
Sumarstörf hjá Mosfellsbæ 2024 - Umsóknarfrestur er til og með 13. mars
Mosfellsbær auglýsir sumarstörf fyrir ungt fólk í Mosfellsbæ.
Sumarstörf hjá Mosfellsbæ 2024
Mosfellsbær auglýsir sumarstörf fyrir ungt fólk í Mosfellsbæ.
Sumarstörf hjá Mosfellsbæ 2023 - Umsóknarfrestur til og með 13. mars
Mosfellsbær auglýsir sumarstörf fyrir ungt fólk í Mosfellsbæ.