Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2015.
Þau ganga fyrir um sumarstörf sem eiga lögheimili í Mosfellsbæ.
Hefðbundin sumarstörf
- Yfirflokksstjóri í Vinnuskóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 23 ára á árinu)
- Flokksstjóri í Vinnuskóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 20 ára á árinu)
- Flokksstjóri í Þjónustustöð / garðyrkjudeild (lágmarksaldur 20 ára árinu)
- Sundlaugavörður í íþróttamiðstöð (lágmarksaldur 20 ára á árinu)
- Aðstoð við fötluð börn og ungmenni (lágmarksaldur 18 ára á árinu)
- Störf í Þjónustustöð / garðyrkjudeild (lágmarksaldur 17 ára á árinu)
- Störf í íþrótta- og tómstundaskóla Mosfellsbæjar (lágmarksaldur 18 ára á árinu)
Sumarátaksstörf
Eingöngu 17 ára til 20 ára geta sótt um þessi störf (ungmenni fædd á árunum 1995 – 1998). Markmiðið er að þau ungmenni sem hafa takmarkaðan aðgang að vinnumarkaði vegna aldurs njóti forgangs að sumarátaksstörfum.
- Aðstoðarflokksstjóri í Vinnuskóla
- Baðvarsla , afgreiðsla og önnur störf í Íþróttamannvirkjum Mosfellsbæjar
- Störf í leikskóla
- Störf í Þjónustustöð / garðyrkjudeild
- Ýmis störf á vegum íþrótta- og tómstundafélaga í Mosfellsbæ
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Mosfellsbæjar og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur um öll störf er til og með 29. mars. Vinsamlegast athugið að ekki verður tekið við umsóknum sem að berast eftir þann tíma.
Þau sem sækja um á réttum tíma en fá ekki starf í fyrstu umferð fara sjálfkrafa á biðlista eftir sumarstarfi.
Öllum umsóknum sem að skilað er inna tilskilins umsóknafrests verður svarað fyrir 30. apríl.
Tengt efni
Sumarstörf hjá Mosfellsbæ 2024 - Umsóknarfrestur er til og með 13. mars
Mosfellsbær auglýsir sumarstörf fyrir ungt fólk í Mosfellsbæ.
Sumarstörf hjá Mosfellsbæ 2024
Mosfellsbær auglýsir sumarstörf fyrir ungt fólk í Mosfellsbæ.
Sumarstörf hjá Mosfellsbæ 2023 - Umsóknarfrestur til og með 13. mars
Mosfellsbær auglýsir sumarstörf fyrir ungt fólk í Mosfellsbæ.