íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar veitti á dögunum 13 ungmennum styrk til að stunda sína íþrótt, tómstund eða list yfir sumartímann.
Það var langur listi hæfra umsækjenda sem að sótti um, 13 strákar og 9 stúlkur.
Við valið styðst nefndin við reglur sem byggja á vilja Mosfellsbæjar til að koma til móts við ungmenni sem, vegna tómstunda sinna, geta ekki með sama hætti og jafnaldrar þeirra stundað launuð störf.
Þessi meginregla auk reglunnar um að jafna beri styrkjum milli kynja, aldurshópa, list-, íþrótta- og tómstundagreina er það sem að íþrótta og tómstundarnefnd styðst við þegar að valið er í þennan hóp
Umsækjendur áttu það allir sameiginlegt að þau langar og þurfa að nota sumartímann til æfinga, koma fram á viðburðum eða vera við keppni.
Þau sem að hlutu styrkin í ár eru:
- Arna Rún Kristjánsdóttir, til að stunda golf
- Böðvar Páll Ásgeirsson, til að stunda handbolta
- Emil Tumi Víglundsson, til að stunda götuhjólreiðar
- Friðrik Karl Karlsson, til að stunda frjálsar íþróttir
- Gunnar Birgisson, til að stunda skíðagöngu
- Halldóra Þóra Birgisdóttir, til að stunda knattspyrnu
- Hannah Rós Sigurðardóttir, til að stunda kvikmyndagerðarlist
- Kjartan Gunnarsson, til að iðka morotcross
- Sigurður Kári Árnason, til að leggja stund á stærðfræði
- Sigurpáll Melberg Pálsson,til að stunda knattspyrnu
- Stefán Ás Ingvarsson, til að stunda badminton
- Súsanna Katarína Guðmundsdóttir, til að stunda hestaíþróttir
- Þuríður Björg Björgvinsdóttir, til að stunda listskautahlaup