Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2010.
Almenningur og fyrirtæki geta tilnefnt þau svæði eða aðila í Mosfellsbæ sem þeim finnst skara framúr í umhverfismálum.
Umhverfisviðurkenningar verða veittar í þremur flokkum sem hér segir:
- Garðar
- Íbúagötur
- Fyrirtæki
Veitt verður ein viðurkenning í hverjum flokki.
Tilnefningum skal skilað rafrænt fyrir 1. ágúst 2010 og verða viðurkenningarnar veittar á bæjarhátíðinni Í túninu heima dagana 27. – 29. ágúst nk.
Tengt efni
Umhverfisviðurkenningar 2024 afhentar á setningarathöfn bæjarhátíðar
Hátíðardagskrá var í Hlégarði fimmtudaginn 29. ágúst þar sem meðal annars voru veittar umhverfisviðurkenningar.
Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2024
Umhverfisnefnd óskar eftir tilnefningum frá almenningi vegna umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2024.
Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2023 afhentar á bæjarhátíð
Hátíðardagskrá var í Hlégarði sunnudaginn 27. ágúst í tengslum við bæjarhátíðina Í túninu heima þar sem meðal annars voru veittar umhverfisviðurkenningar.