Vakin er athygli á opnun íþróttamannvirkja um páskahátíðina.
Vakin er athygli á opnun íþróttamannvirkja um páskahátíðina. Sund er góð og hressandi iðja og eru bæjarbúar hvattir til þess að njóta þess yfir hátíðarnar. Sundlaugarsvæðið í Lágafelli og Varmá er fjölbreytt og ættu flestir að finna sér eitthvað sem hentar hverju sinni.
Íþróttamiðstöðin Lágafelli og Varmá auglýsa opið um páskahátíðina sem hér segir:
- Lágafellslaug er opin 18.-22. apríl frá kl. 09:00-19:00.
- Varmárlaug er opin 18., 20. og 22. apríl frá kl. 09:00-16:00. Lokað 19. og 21. apríl.
Gleðilega páska!
Starfsfólk íþróttamiðstöðva Lágafelli og Varmá
Tengt efni
Syndum, landsátak í sundi hefst 1. nóvember 2024
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. – 30. nóvember 2024.
Tilmælum aflétt
Sundlaugar opnuðu í morgun