Frá og með deginum í dag hefst nýtt tímabil frístundarávísunar í Mosfellsbæ.
Nýja frístundarávísunin er gild frá 1. júlí 2014 til 30. júní 2015.
Frístundarávísunin hækkar úr 18.000 kr. í 25.000 kr.
Fyrir mistök birtist auglýsing á vef bæjarins í síðasta mánuði þess efnis að nýtt tímabil myndi hefjast 1. ágúst 2014. Það var því miður ekki rétt og leiðréttist hér með.
Nánari upplýsingar veitir þjónustuver Mosfellsbæjar í síma 525-6700 og Edda Davíðsdóttir tómstundafulltrúi Mosfellsbæjar.
Tengt efni
Opnað fyrir nýtingu frístundaávísana allt árið
Fjölbreytt og skemmtilegt starf í Tröllabæ
Frístundaávísun hækkar
Þann 15. ágúst hófst nýtt tímabil frístundaávísunar í Mosfellsbæ.