Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
20. ágúst 2013

Núna eru síð­ustu dag­ar til að nýta frí­stunda­á­vís­an­ir fyr­ir síð­asta skóla­ár.

Nýtt tíma­bil tek­ur gildi þann 1. sept­em­ber. Frí­stunda­á­vís­un fyr­ir tíma­bil­ið 2012-2013 sem hef­ur ekki ver­ið not­uð fyrn­ist eft­ir 31. ág­úst. Nýtt tíma­bil fyr­ir frí­stunda­á­vís­an­ir fyr­ir vet­ur­inn 2013-2014 er frá 1. sept­em­ber 2013.

Mos­fells­bær gef­ur for­ráða­mönn­um allra barna og ung­linga á aldr­in­um 6-18 ára, ár­gang­ar 1996-2007,  með lög­heim­ili í Mos­fells­bæ kost á frí­stunda­á­vís­un að upp­hæð 18.000 kr. sem hægt er að nota til að greiða fyr­ir hvers kon­ar frí­stund­ast­arf hjá við­ur­kennd­um frí­stunda­fé­lög­um eða frí­stunda­stofn­un­um. At­hug­ið að það er hækk­un frá fyrra tíma­bili.

Ávís­un­in gild­ir í eitt ár í senn, frá 1. sept­em­ber til 31. ág­úst ár hvert, fyr­ir þau börn sem verða 6 ára og 18 ára á ár­inu, það er að segja börn sem eru að hefja nám í fyrsta bekk grunn­skóla til og með ung­linga á öðru ári í fram­halds­skóla. Sé barn orð­ið 18 ára sæk­ir það sjálft um á íbúagátt­inni.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00