Mánudaginn 21. ágúst, frá kl. 12:30 til 15:30, er ráðgert að malbika afréttingarlag á Vesturlandsvegi næst hringtorgi við Langatanga til norðurs, báðar akreinar.
Unnið verður á einni akrein í einu. Vesturlandsvegur verður þrengdur niður í eina akrein á þessum framkvæmdastað. Viðeigandi merkingar verða settar upp. Kaflinn er rúmlega 30 m. langur
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.