Vegna veðurs er malbikunarframkvæmdum á Helgafellsvegi frestað til þriðjudagsins 13. júlí.
Mánudaginn 12. júlí, ef veður leyfir, stendur til að malbika Helgafellsveg frá hringtorgi við Vesturlandsveg að hringtorgi við Vefarastræti. Áætlað er að framkvæmdir hefjist kl. 09:00 og standi fram til kl. 16:00.Helgafellsvegur verður því lokaður á þessum tíma.
Hjáleið verður um Ásaveg að Þingvallavallavegi og milli Efstalands og Brekkulands. Hjáleið í Álafosskvos verður um Reykjalundarveg.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna framkvæmdaraðilum tillitssemi meðan á framkvæmdum stendur og við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar geta haft í för með sér.