Þriðjudaginn 19. október, ef veður leyfir, er stefnt á að malbika hringtorg á Vesturlandsvegi við Langatanga í Mosfellsbæ.
Vesturlandsvegi verður lokað á milli Skarhólabrautar og Reykjavegar. Hjáleiðir verða merktar um Skarhólabraut/Reykjaveg annars vegar og Þverholt/Baugshlíð hins vegar.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 18:30 til kl. 24:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.