Föstudaginn 26. júli frá kl. 06:00 til kl. 14:00 verður unnið við malbiksyfirlögn á bílastæði við Íþróttamiðstöðina Lágfell. Við þessa framkvæmd lokast bílastæðið við íþróttamiðstöðina.
Við bendum á bílastæði við Leikskólann Höfðaberg og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum og truflunum sem þessar framkvæmdir geta mögulega valdið. Við biðjum vegfarendur um að sýna framkvæmdaraðilum tillitsemi meðan á framkvæmdum stendur.