Föstudaginn 28. júní, frá kl. 09:00 til kl. 14:00, verður unnið við yfirlagnir á hringkeyrslu innst í Leirutanga (báðar akreinar).
Athugið að þessi áætlun er háð veðri og getur því tekið breytingum. Umsjónaraðili verksins er Loftorka.
Við biðjumst velvirðingar á þeim truflunum sem þessar framkvæmdir geta valdið. Vegfarendur eru beðnir um að sýna framkvæmdaraðilum tillitssemi.