Þriðjudaginn 10. september frá kl. 13:00 til kl. 16:00 verður unnið við yfirlagnir á Krikatorgi að hluta til. Hjáleiðir eru um norðurhluta Litlakrika og Stórakrika.
Athugið að þessi áætlun er veðurháð og getur því tekið breytingum. Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þessar framkvæmdir geta valdið. Vegfarendur eru beðnir um að sýna framkvæmdaraðilum tillitssemi.
Tengt efni
Samningur við Fagurverk
Upplýsingar til húseigenda og íbúa í Lágholti um fyrirhugaðar framkvæmdir
Fyrirhugaðar stórframkvæmdir á veitukerfi í Lágholti.
Samantekt framkvæmda árið 2024