Þórir Gunnarsson, einnig þekktur sem Listapúkinn, er bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2021.
Á sérstakri hátíðardagskrá í Listasal Mosfellsbæjar var myndlistamaðurinn Þórir Gunnarsson, einnig þekktur sem Listapúkinn, útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2021.
Menningar- og nýsköpunarnefnd Mosfellsbæjar sér um val bæjarlistamanns ár hvert og veitti Sólveig Franklínsdóttir formaður nefndarinnar Þóri verðlaunagrip eftir listakonuna Ingu Elínu ásamt viðurkenningarfé sem fylgir nafnbótinni.
Þórir Gunnarsson er Mosfellingur í húð og hár. Hann starfar hjá Múlalundi og á Reykjalundi og æfir hjá Aftureldingu auk þess að vera öflugur meðlimur stuðningsklúbbsins Rothöggsins.Hann er ötull í list sinni, kappsamur og hugmyndaríkur. Myndir hans spegla oftar en ekki fegurð hversdagsleikans en einnig er hann þekktur fyrir litríkar portrettmyndir sínar af vinum og vandamönnum jafnt sem þjóðþekktum einstaklingum.
Þórir sýndi í Kaffihúsinu í Álafosskvos árin 2012, 2013, 2014 og 2015, á Blik á bæjarhátíðinni Í túninu heima árið 2018 og samsýningu á vegum Listar án landamæra í Gallerí Gróttu árið 2020.
Á næsta ári er fyrirhuguð sýning á verkum Þóris í Listasal Mosfellsbæjar.
Tengt efni
Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2024
Á sérstakri hátíðardagskrá við setningu bæjarhátíðarinnar Í túninu heima í Mosfellsbæ fimmtudaginn 29. ágúst var leirlistakonan Þóra Sigurþórsdóttir útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2024.
Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2024 - Hægt að sækja um og tilnefna til og með 11. ágúst
Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2024 - Tilnefningar og umsóknir