Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
31. október 2021

Íþrótta- og Ólymp­íu­sam­band Ís­lands (ÍSÍ) í sam­starfi við Sund­sam­band Ís­lands stend­ur fyr­ir landsátaki í sundi frá 1. til 28. nóv­em­ber 2021.

Synd­um er heilsu- og hvatn­ingar­átak sem höfð­ar til allra lands­manna. Mark­mið­ið með Synd­um er að hvetja al­menn­ing til þess að hreyfa sig oft­ar og meira í sínu dag­lega lífi og nota með­al ann­ars sund til þess.

Mark­mið­ið með Synd­um er að hvetja al­menn­ing til þess að hreyfa sig oft­ar og meira í sínu dag­lega lífi og nota með­al ann­ars sund til þess. Mun­um eft­ir því hvað sund er frá­bært!

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á synd­um.is og fara í Mín­ar skrán­ing­ar. Ein­falt er að velja sér not­end­anafn og lyk­il­orð og skrá sín­ar sund­vega­lengd­ir. Þau sem eiga not­end­anafn í verk­efn­inu Lífs­hlaup­ið eða Hjólað í vinn­una geta notað það til að skrá sig inn.

Synd­um sam­an hring­inn í kring­um Ís­land. Þeir metr­ar sem þú synd­ir safn­ast sam­an og á for­síðu synd­um.is verð­ur hægt að sjá hversu marga hringi lands­menn hafa synt.

Á synd­um.is eru all­ar nán­ari upp­lýs­ing­ar um verk­efn­ið auk ým­iss ann­ars fróð­leiks og upp­lýs­ing­um um sund­laug­ar lands­ins.

Þau sem skrá sig og taka þátt geta átt mögu­leika á að verða dreg­in út og unn­ið veg­lega vinn­inga.

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00