Þau sem eru gjaldgeng sem íþróttakarl og íþróttakona Mosfellsbæjar skulu koma úr röðum starfandi íþróttafélaga/deilda í bæjarfélaginu eða vera með lögheimili í Mosfellsbæ en stunda íþrótt sína utan sveitarfélagsins.
Komi útnefning frá tveimur félögum í sömu íþróttagrein má íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar leita til sérsambands ÍSÍ um álit.
Vinsamlega sendið útnefningar og ábendingar á dana@mos.is fyrir 18. desember 2021.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Guðmundsson íþróttafulltrúiMosfellsbæjar í síma 660-0750 og Dana Marteinsdóttir í síma 659-9654.
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar
Tengt efni
Íþróttafólk Mosfellsbæjar 2022 var heiðrað í dag
18 voru tilnefnd, eins og áður gafst bæjarbúum kostur á, ásamt íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar, að kjósa Íþróttafólk ársins 2022. Á sama tíma var þjálfari, lið og sjálfboðaliði ársins heiðruð.
Kjör íþróttafólks Mosfellsbæjar 2022
Átta konur og tíu karlar hafa verið tilnefnd af íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar til íþróttafólks Mosfellsbæjar 2022.
Sjálfboðaliði ársins 2022
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar mun núna í fyrsta sinn heiðra sjálfboðaliða ársins í samstarfi við íþrótta- og tómstundafélög í bænum.