Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Fimmtu­dag­inn 13. janú­ar nk. kl. 20:00 verð­ur hald­ið hóf í íþróttamið­stöð­inni að Varmá þar sem lýst verð­ur kjöri íþrótta­fólks Mos­fells­bæj­ar árið 2010.

Við sama til­efni er þeim ein­stak­ling­um sem hafa orð­ið Ís­lands-, deild­ar-, bik­ar- eða lands­móts­meist­ar­ar 2010 veitt­ar við­ur­kenn­ing­ar ásamt þeim sem hafa tek­ið þátt og/eða æft með lands­liði á liðnu ári.

Íþrótta­fé­lög í Mos­fells­bæ hafa ávallt kom­ið upp­lýs­ing­um um ein­stak­linga inn­an sinna vé­banda sem unn­ið hafa til þess­ara af­reka til íþrótta­full­trúa. Það er þó ávallt þann­ig að nokk­ur fjöldi Mos­fell­inga stunda ekki íþrótt sína með fé­lög­um í bæn­um og lang­ar íþrótta- og tóm­stunda­nefnd að leita til allra Mos­fell­inga með að koma ábend­in­um til íþrótta­full­trúa um þá sem unn­ið hafa til þeirra af­reka sem til­greind eru hér að ofan og eru í fé­lög­um utan bæj­ar­ins. Vin­sam­lega haf­ið sam­band við íþrótta­full­trúa í síma 660-0750 eða send­ið hon­um línu á sg@mos.is.

All­ir Mos­fell­ing­ar eru hjart­an­lega vel­komn­ir á kjör­ið!

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán., þri., fim. 8:00-16:00
mið. 8:00-18:00
fös. 8:00-14:00