Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboði í flutning og/eða niðurrif á 130 fm. timburhúsi (7m x 18m) sem stendur á lóð Varmárskóla.
Húsið hefur verið notað sem kennslustofur um árabil en byggingarár hússins er 1978. Húsið hefur verið töluvert endurnýjað að innan á síðustu árum.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Sigvaldason í síma 693-6703 og hægt verður að senda inn fyrirspurnir og nálgast gögn á netfanginu mos[hja]mos.is.
Tilboðum skal skilað á netfangið mos[hja]mos.is, eigi síðar en 5. nóvember 2020 kl. 11:00.
Niðurstöður verða birtar á vef Mosfellsbæjar.
Tengt efni
Útboð: Gangstéttar og frágangur í Mosfellsbæ
Mosfellsbær óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í útboði vegna gangstéttasteypu og frágangs á ýmsum stöðum í Mosfellsbæ.
Útboð: Rammasamningur Mosfellsbæjar um tímavinnu iðnaðarmanna
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í: Rammasamning um tímavinnu iðnaðarmanna.
Útboð á hirðu úrgangs við heimili í Mosfellsbæ og Garðabæ 2024-2029
Mosfellsbær og Garðabær óska eftir tilboðum í hirðu úrgangs.