Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða
13. apríl 2015

Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd Mos­fells­bæj­ar veitti í síð­ustu viku tíu ung­menn­um styrk til að stunda sína íþrótt- tóm­st­und eða list yfir sum­ar­tím­anna.

Í ár sóttu um, 9 stúlk­ur og 11 strák­ar. Við val­ið styðst nefnd­in við regl­ur sem byggja á vilja Mos­fells­bæj­ar til að koma til móts við ung­menni sem, vegna tóm­stunda sinna, geta ekki með sama hætti og jafn­aldr­ar þeirra stundað laun­uð störf.

Þessi meg­in­regla auk regl­unn­ar um að jafna beri styrkj­um milli kynja, ald­urs­hópa, list- íþrótta- og tóm­stunda­greina er það sem að íþrótta og tóm­stund­ar­nefnd styðst við þeg­ar að val­ið er í þenn­an hóp. Um­sækj­end­ur áttu það all­ir sam­eig­in­legt að þau lang­ar og þurfa að nota sum­ar­tím­ann til æf­inga, koma fram á við­burð­um eða vera við keppni.

Í staf­rófs­röð eru styrk­haf­ar þess­ir:

  • Adam Elí Ingu­son Arn­alds­son til að stunda Ólymp­íska áhaldafim­leika
  • Anton Hugi Kjart­ans­son til að stunda hesta­mennsku
  • Ari Páll Karls­son, til að stunda söng, tónlist
  • Arnór Gauti Ragn­ars­son til að stunda knatt­spyrnu
  • Björn Ósk­ar Guð­jóns­son til að stunda golf
  • Kristín Arndís Ólafs­dótt­ir til að stunda hand­bolta
  • Kristín Þóra Birg­is­dótt­ir, til að stunda knatt­spyrnu
  • Marta Cara­asco til að stunda dans
  • Ragn­ar Már Ríkarðs­son til að stunda golf
  • Þóra Björg Ingi­mund­ar­dótt­ir til að stunda söng og tónlist

Íþrótta- og tóm­stunda­nefnd ósk­ar þeim inni­lega til ham­ingju og von­ar að styrk­ur­inn nýt­ist þeim vel til frek­ari af­reka.

Adam Elí, Anton Hugi, Ari Páll, Arnór Gauti, Kristín Arndís, Marta og Þóra Björg. Á mynd­ina vant­ar Björn Ósk­ar, Krístínu Þóru og Ragn­ar Már.

Tengt efni

Netspjall

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00

Þjónustuver 525-6700

Opið virka daga
mán. – fim. 8:00-16:00
fös. 8:00-14:00