Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Grassláttur og hirðing í Mosfellsbæa 2020-2022 (EES útboð). Verkið felur í sér grasslátt og heyhirðu á völdum svæðum í Mosfellsbæ, samtals u.þ.b. 31 ha.
Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Grassláttur og hirðing í Mosfellsbæa 2020-2022 (EES útboð).
Verkið felur í sér grasslátt og heyhirðu á völdum svæðum í Mosfellsbæ, samtals u.þ.b. 31 ha.
Gerður verður samningur um verkið til þriggja ára með möguleika til framlengingar.
Áhugasamir sæki um útboðsgögn á netfanginu: heida[hja]mos.is og gefi upp nafn fyrirtækis ásamt upplýsingum um tengilið. Gögn verða send út með rafrænum hætti frá og með mánudeginum 23. mars 2020 klukkan 10:00.
Tilboðum skal skila í afgreiðslu þjónustuvers Bæjarskrifstofa Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð, eigi síðar en kl. 11:00 mánudaginn 27. apríl 2020. Tilboð verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.