Miðvikudaginn 11. ágúst til föstudagsins 13. ágúst er stefnt á framkvæmdir við hljóðmön við Vesturlandsveg inn af strætóvasa milli Skarhólabrautar og Langatanga.
Umferð vörubíla að og frá vinnusvæðinu verður um strætóvasa og verður hraði því tekinn niður í 50km/klst. Viðeigandi merkingar verða settar upp.
Áætlað er að framkvæmdirnar við Vesturlandsveg standi frá kl. 7:30 til kl. 16:30 þá daga sem unnið er.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.