Í kvöld, þriðjudaginn 8. júní, milli kl 20:00-01:00, er stefnt að því að fræsa Vesturlandsveg milli Þingvallavegar og Köldukvíslar, ef veður leyfir.
Veginum verður lokað meðan á framkvæmdum stendur og viðeigandi merkingar og hjáleiðir settar upp.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til kl. 01:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Tengt efni
Framkvæmdir við sparkvöll hjá Varmárskóla að hefjast
Framkvæmdir við nýjan upphitaðan sparkvöll á skólalóð Varmárskóla hefjast í vikunni og eru þær í höndum fyrirtækisins Vargur ehf.
Viðgerð á hraðahindrun - Bogatangi
Framkvæmdir við leikskólann Reykjakot