Menningar- og nýsköpunarnefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna listviðburða og menningarmála árið 2019.
Hér undir falla áður árviss fjárframlög til margvíslegrar menningarstarfsemi í bænum, auk nýrra. Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða stofnanir, innan sem utan Mosfellsbæjar. Menningar- og nýsköpunarnefnd óskar sérstaklega eftir umsóknum sem efla nýsköpun á sviði lista og menningar.
Fjárframlög til lista og menningarmála eru af tvennum toga:
- Fjárframlög til almennrar listastarfsemi
- Fjárframlög vegna viðburða eða verkefna
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 15. mars 2019 á íbúagátt Mosfellsbæjar.
Niðurstöður menningarmálanefndar Mosfellsbæjar munu liggja fyrir eigi síðar en 2. apríl 2019 og eru háðar samþykki bæjarstjórnar.
Tengt efni
Erna Sóley afreksíþróttamaður 2024
Nýsköpunarstyrkur Mosfellsbæjar afhentur í Hlégarði
Nýsköpunarstyrkur Mosfellsbæjar var afhentur í Hlégarði fimmtudaginn 27. júní.
Styrkir úr Klörusjóði afhentir 12. júní 2024
Miðvikudaginn 12. júní voru afhentir styrkir úr Klörusjóði en markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og framþróun í skóla- og frístundastarfi í Mosfellsbæ.