Menningarmálanefnd auglýsir eftir aðilum sem óska eftir fjárframlögum frá nefndinni vegna listviðburða og menningarmála árið 2015.
Hér undir falla áður árviss fjárframlög til margvíslegrar menningarstarfsemi í bænum, auk nýrra.
Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, félagasamtök eða stofnanir, innan sem utan Mosfellsbæjar.
Fjárframlög til lista og menningarmála eru af tvennum toga:
- Fjárframlög til almennrar listastarfsemi
- Fjárframlög vegna viðburða eða verkefna
Umsóknum skal skilað í síðasta lagi þann 1. mars 2015 í þjónustuver Mosfellsbæjar eða á netfangið: mos[hja]mos.is
Nefndin áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna umsókn umsækjanda að hluta eða alfarið, ef ekki er færi á öðru að mati nefndar. Afgreiðsla nefndarinnar er trúnaðarmál.
Niðurstöður menningarmálanefndar Mosfellsbæjar munu liggja fyrir eigi síðar en 5. apríl 2015 og eru háðar samþykki bæjarstjórnar.