Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ mótmæla því harðlega að endurbætur á Vesturlandsvegi séu saltaðar en önnur verkefni sett í forgang enda sé kaflinn í gegnum bæinn einn hættulegasti og umferðarþyngsti þjóðvegur landsins.
Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.
Það sem brennur heitast á Mosfellingum er vegarkaflinn við Hlégarð sem liggur yfir Varmá, um Álafosshringtorgið og um svokallaða Ullarnesbrekku, að því er fram kemur á fréttavefnum visir.is. Tvöföldun þessa kafla, milli Þingvallavegar og Hafravatnsvegar, átti að fara í útboð í vor þegar ríkisstjórnin setti á framkvæmdabann.
Bæjaryfirvöld funduðu nýlega með samgönguráðherra þar sem þau komu á framfæri hörðum mótmælum við því að þetta verkefni væri ekki sett í forgang en önnur tekin fram yfir. Þarna hefði orðið fjöldi alvarlegra slysa enda ækju þarna um 16 þúsund bílar á sólarhring.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri sagði í viðtali við Fréttastofu Stöðvar 2 að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu væru langþreytt á því hvað lítið fé fáist til vegabóta þar miðað við skatttekjur ríkisins af umferðinni á svæðinu, sem eru margfalt hærri.
Tengt efni
Aukin vetraropnun kaffistofu Samhjálpar
Neyðarkallinn til styrktar björgunarsveitinni Kyndli
Mosfellsbær styrkir Björgunarsveitina Kyndil með því að kaupa Neyðarkallinn 2024.
Bókun samtala hjá velferðarsviði