Menningar- og lýðræðisnefnd óskar eftir umsóknum og tilnefningum frá Mosfellingum um einstakling eða samtök listafólks í Mosfellsbæ sem bæjarlistamaður ársins 2023.
Útnefning bæjarlistamanns fer fram í tengslum við bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima.
Allt starfandi listafólk, listahópar og samtök sem starfa í Mosfellsbæ koma til greina og nefndin metur allar umsóknir og tilnefningar sem fram koma.
Umsóknir og tilnefningar skulu berast rafrænt í gegnum þjónustugátt bæjarins og þurfa að hafa borist í síðasta lagi 13. ágúst 2023.
Sækja um eða tilnefna:
Tengt efni
Hljómsveitin Gildran bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2023
Á sérstakri hátíðardagskrá í lok bæjarhátíðarinnar Í túninu heima var hljómsveitin Gildran útnefnd bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2023.
Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2023 - Hægt að sækja um og tilnefna til og með 13. ágúst
Menningar- og lýðræðisnefnd óskar eftir umsóknum og tilnefningum frá Mosfellingum um einstakling eða samtök listafólks í Mosfellsbæ sem bæjarlistamaður ársins 2023.
Leikhópurinn Miðnætti er bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2022
Leikhópinn stofnuðu þær Agnes Wild leikkona og leikstjóri, Sigrún Harðardóttir tónlistarkona og Eva Björg Harðardóttir leikmynda- og búningahönnuður.